Eiga í vök að verjast eftir Nvidia-hneykslið

Frá Singapúr.

Frá Singapúr. Ljósmynd/Colourbox

Stjórnvöld í Singapúr reyna nú að verja orðspor borgríkisins sem traustrar miðstöðvar viðskipta eftir ásakanir um að kínversk fyrirtæki hafi nýtt sér aðstöðu þar til að komast yfir háþróaða gervigreindarörgjörva þrátt fyrir bandarískar útflutningstakmarkanir.

Vaxandi hneykslismál vegna ástarsambands Jensens Huangs, sem þar til nýlega stýrði bandaríska örgjörvarisanum Nvidia, og konu sem grunuð er um njósnir fyrir Kína hefur beint sjónum að hlutverki Singapúr í alþjóðlegum viðskiptum með háþróaða hálfleiðara.

Bandarísk stjórnvöld gripu í gær til aðgerða til að loka glufu í reglum um útflutning öflugra gervigreindarörgjörva til Kína. Þau segja takmarkanirnar nauðsynlegar til að vernda þjóðaröryggi.

Nýju reglurnar beinast bæði gegn ólöglegu smygli á örgjörvum og umfangsmiklum viðskiptum á gráu svæði. Þar leigja kínversk fyrirtæki reikniafl hjá gagnaverum sem eru búin háþróuðum Nvidia-örgjörvum og staðsett í þriðju ríkjum, gjarnan í Suðaustur-Asíu.

Aðgerðirnar koma í kjölfar uppljóstrana um ástarsamband Huangs og Alice Huang, fyrrverandi stjórnanda hjá skýjaþjónustufyrirtækinu Megaspeed International í Singapúr. Bandarísk stjórnvöld rannsaka hvort fyrirtækið hafi flutt Nvidia-örgjörva til Kína í trássi við bandarískar reglur.

Telur þörf á hertu eftirliti

Málið sé „augljóslega ekki góð auglýsing fyrir Singapúr“, segir Chong Ja Ian, stjórnmálafræðingur við National University of Singapore, í samtali við AFP.

Stjórnvöld í Singapúr rannsaka einnig starfsemi Megaspeed. Chong segir þó að herða þurfi eftirlit til að koma í veg fyrir að sú mynd festist í sessi að vandinn sé kerfislægur.

Nvidia-málið geti gert stjórnvöldum erfiðara að viðhalda orðspori Singapúr sem heiðarlegrar miðstöðvar viðskipta með því einu að taka á einstökum málum, án þess að herða reglur og löggjöf.

Samkvæmt fréttum telja sumir bandarískir embættismenn að Alice Huang hafi stundað njósnir fyrir stjórnvöld í Peking. Hún er ekki skyld Jensen Huang.

Leyfi þarf fyrir sölu til Singapúr

Stjórnvöld í Singapúr segjast fara vandlega yfir nýju bandarísku aðgerðirnar. Samkvæmt þeim þurfa gagnaver um allan heim bandarískt leyfi til að veita fyrirtækjum með höfuðstöðvar í Kína aðgang að miklu reikniafli frá háþróuðum örgjörvum. Sama gildir um fyrirtæki með höfuðstöðvar í öðrum ríkjum sem sæta bandarísku vopnasölubanni.

Einnig verður bandarísks leyfis krafist til að flytja háþróaða örgjörva til Singapúr, Malasíu, Taílands, Indónesíu og Brasilíu. Bandaríska viðskiptaráðuneytið telur meiri hættu en almennt gerist á að viðkvæmur tæknibúnaður sem sendur er til þessara ríkja verði fluttur áfram í trássi við útflutningstakmarkanir.

„Við tökum alþjóðlegt orðspor okkar alvarlega,“ segir í yfirlýsingu stjórnvalda í Singapúr.

Þau segjast ekki líða að fyrirtæki nýti tengsl sín við Singapúr til að sniðganga eða brjóta lög annarra ríkja í alþjóðaviðskiptum, þar á meðal reglur um útflutningseftirlit.

Milli steins og sleggju

Sumir greinendur telja Singapúr glíma við aðstæður sem stjórnvöld þar hafi að miklu leyti ekki stjórn á. Borgríkið hafi lent milli steins og sleggju í tæknisamkeppni Bandaríkjanna og Kína.

Nvidia er talið ráða yfir um 90% markaðarins fyrir örgjörva sem notaðir eru til að þjálfa og keyra gervigreindarlíkön. Bandaríkin hófu að takmarka sölu þeirra til Kína fyrir fjórum árum.

Rajiv Biswas, yfirmaður áhætturáðgjafarfyrirtækisins Asia-Pacific Economics í Singapúr, segir ábyrgð á slíku útflutningseftirliti fyrst og fremst eiga að hvíla á stjórnvöldunum sem setji reglurnar. Ekki eigi að færa framkvæmd þeirra yfir á önnur lögsagnarumdæmi.

Hann segir stjórnvöld í Singapúr þegar hafa gripið til öflugra aðgerða í nokkrum málum þar sem fyrirtæki hafi notað borgríkið sem viðkomustað við flutning háþróaðra gervigreindarörgjörva sem sæta takmörkunum.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅