Ofurfyrirsætupabbinn trúlofaður miklu yngri konu
Fasteignamógúllinn Mohamed Hadid er trúlofaður kærustu sinni, sjónvarpsstjörnunni Keni Silva. Hadid er þekktur fyrir fasteignaævintýri sín en líka fyrir að vera faðir ofurfyrirsætanna Gigi og Bellu Hadid.
Mohamad Hadid og Silva tilkynntu trúlofun sína í samkvæmi á vegum Vogue í Dubai um helgina. Var Silva með stóran demantshring á baugfingri. Silva er 43 ára en Hadid er 78 ára.
„Ástin rennur ekki út og það gera draumar ekki heldur,“ sagði Silva í viðtali við Vogue Arabia. Bónorðið kom henni á óvart en það fór fram á uppáhaldveitingastaðnum þeirra, Polo Lounge í Beverly Hills.
Eiga fortíð
Bæði hafa þau verið gift áður. Silva sem 43 ára var gift fyrrverandi eiginmanni sínum í 13 ár og á með honum eitt barn. Mohamad Hadid hefur hins vegar verið kvæntur tvisvar og á sex börn með þremur konum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
