Baywatch-stjarnan afhjúpar leyndarmál sitt – Hefur ekki stundað kynlíf í 15 ár
Leikkonan Erika Eleniak, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Baywatch á tíunda áratugnum og var eitt þekktasta kyntákn heims, hefur greint frá því að hún hafi ekki stundað kynlíf í 15 ár. Ástæðan er þó önnur en margir kynnu að halda.
Eleniak, sem er 56 ára, opnaði sig um einkalíf sitt í hlaðvarpsþætti Brandi Glanville á dögunum. Ástralski fréttavefurinn news.com.au greinir frá.
„Þegar ég eignaðist barnið mitt og gekk í gegnum hræðileg sambandsslit við föður hennar ákvað ég að fara aldrei aftur á stefnumót. Og nú eru bókstaflega liðin 15 ár,“ sagði leikkonan.
Hún lét sér ekki nægja þá lýsingu þegar talið barst að kynlífinu.
„Köngulóarvefir. Þetta er eins og grafhýsi sem hefur verið neglt aftur,“ sagði hún kímin og vísaði þar með á myndrænan hátt til þess hversu langt væri síðan hún hefði síðast stundað kynlíf.
Ákvörðunin tengist fyrst og fremst dóttur hennar, Indyönnu, sem er nú tvítug. Eleniak segist hafa viljað vernda hana eftir erfiða reynslu fjölskyldunnar og því ákveðið að hleypa engum nýjum karlmanni inn í líf þeirra.
„Ég tók þessa ákvörðun fyrir dóttur mína. Ég vildi einfaldlega ekki að neinn kæmi nálægt henni eftir það sem hún hafði gengið í gegnum.“
Eleniak segist sátt við ákvörðun sína þótt faðir hennar hafi á sínum tíma velt því upp hvort hún væri með þessu að svipta dóttur sína möguleikanum á að eignast nýja föðurímynd.
Leikkonan varð heimsfræg fyrir hlutverk Shauni McClain í Baywatch, þar sem hún lék meðal annars á móti David Hasselhoff, áður en Pamela Anderson tók við sem helsta kyntákn þáttanna. Eleniak sat einnig fyrir hjá Playboy á sínum tíma.
Þrátt fyrir langvarandi kynlífsbindindi hefur hún nýlega opnað aðgang á OnlyFans, þar sem hún hyggst birta djarfara efni.
„Ég er 56 ára, tek sjálfri mér eins og ég er í dag og það er eitthvað ótrúlega frelsandi við að hefja alveg nýjan kafla á þessum tímapunkti í lífinu,“ sagði hún.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗