Gerðu samning um íslenskupróf
Dómsmálaráðuneytið og Háskóli Íslands hafa undirritað samning um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt. Samningurinn er til fjögurra ára og mun hugvísindasvið skólans hafa umsjón með prófunum.
Samkvæmt samningnum leggur Háskóli Íslands til starfsfólk, sérfræðiþekkingu, aðstöðu og prófgögn. Próf skulu haldin minnst tvisvar á hverju almanaksári og verður fyrirkomulag þeirra auglýst með fyrirvara, að því er kemur fram í tilkynningu.
Opnað var fyrir skráningu síðdegis í gær fyrir próf sem verður haldið 12. desember. Loka þurfti skráningu tveimur tímum seinna þegar 42 höfðu skráð sig.
Samkvæmt reglugerð sem ráðuneytið setur verður próftökugjald 50 þúsund krónur. Gjaldinu er ætlað að standa straum af fyrirlögn, yfirferð og þróun prófa og rennur óskipt til Háskóla Íslands.
Ráðuneytið greiðir háskólanum 7.925.000 í upphafskostnað vegna verkefnisins.
Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu (MMS) hafði áður umsjón með verkefninu en í byrjun síðasta árs sagði stofnunin upp þeim samningi. Ákveðið var að MMS myndi sjá um framkvæmd íslenskuprófa á árinu 2025 á meðan unnið væri að nýju fyrirkomulagi.
„Íslenskukunnátta er lykill að virkri þátttöku í samfélaginu. Við eigum að gera skýrar kröfur um íslenskukunnáttu þeirra sem vilja setjast hér að til frambúðar. Hins vegar, eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum, verða stjórnvöld um leið að tryggja raunhæf tækifæri til íslenskukennslu. Þetta tvennt helst í hendur og um það þarf að eiga samtal við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗