Mýflug sýknað af 105 milljóna kröfu flugmanns
Krafa mannsins skiptist í um 23,6 milljónir króna vegna veikindalauna og um 81,5 milljónir vegna skírteinistryggingar, sem ætlað er að bæta flugmönnum missi starfsréttinda. mbl.is/Sigurður Bogi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Mýflug hf. af rúmlega 105 milljóna króna kröfu fyrrverandi flugmanns Flugfélagsins Ernis, sem fékk heilablæðingu sumarið 2024.
Maðurinn krafðist veikindalauna og greiðslu vegna skírteinistryggingar á þeim grundvelli að ráðningarsamband hans hefði færst yfir til Mýflugs.
Dómurinn féllst á að aðilaskipti hefðu orðið að hluta starfsemi Ernis. Maðurinn hefði hins vegar ekki sannað að hann hefði verið í ráðningarsambandi við Mýflug þegar veikindi hans hófust.
Dómurinn var kveðinn upp 5. nóvember en var birtur í dag. Manninum var gert að greiða Mýflugi 2,79 milljónir króna í málskostnað.
Sagt upp ásamt öðrum flugmönnum
Maðurinn hóf störf hjá Erni árið 2016 og var fastráðinn í ársbyrjun 2017. Honum var sagt upp störfum 29. febrúar 2024 með þriggja mánaða uppsagnarfresti, líkt og öðrum flugmönnum félagsins.
Í uppsagnarbréfinu var vísað til yfirvofandi samdráttar vegna óvissu um samninga við Vegagerðina um áætlunarflug innanlands. Jafnframt var lýst vonum um að unnt yrði að ráða hann aftur á næstu mánuðum.
Fimm flugmenn Ernis voru færðir á launaskrá Mýflugs 1. júní 2024 en maðurinn var ekki meðal þeirra. Hann taldi þó að uppsögn sín hjá Erni hefði ekki komið til framkvæmda og að hann hefði orðið starfsmaður Mýflugs frá þeim degi.
Hinn 25. júní fékk hann heilablæðingu og var í lífshættu. Hann dvaldi á sjúkrahúsi þar til hann útskrifaðist af Grensásdeild í nóvember sama ár. Samkvæmt læknisvottorði sem lagt var fram í málinu var hann ekki hæfur til að fá útgefið heilbrigðisvottorð sem atvinnuflugmaður og ekki taldar horfur á að það breyttist í fyrirsjáanlegri framtíð.
Aðilaskipti talin hafa orðið
Krafa mannsins skiptist í um 23,6 milljónir króna vegna veikindalauna og um 81,5 milljónir vegna skírteinistryggingar, sem ætlað er að bæta flugmönnum missi starfsréttinda.
Hann byggði á því að Mýflug hefði tekið yfir flugrekstur Ernis og þar með skyldur félagsins gagnvart honum samkvæmt lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Mýflug hafnaði því að aðilaskipti hefðu orðið og taldi manninn aldrei hafa verið starfsmann sinn.
Dómurinn taldi að aðilaskipti hefðu orðið 1. júní 2024, þegar fimm flugmenn Ernis voru færðir á launaskrá Mýflugs. Við heildarmat var meðal annars litið til þess að Mýflug hefði tekið við áætlunarflugi til Hornafjarðar, nýtt flugvélina TF-ORA og tekið við flugmönnum sem höfðu þjálfun og reynslu til að halda starfseminni áfram.
Ráðningarsamband ósannað
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu taldi dómurinn ekki grundvöll fyrir kröfum mannsins á hendur Mýflugi.
Uppsögn hans hjá Erni hefði verið gerð í hagræðingarskyni af efnahagslegum ástæðum. Hún hefði því ekki brotið gegn banni laganna við uppsögnum vegna aðilaskipta.
Maðurinn fékk greiðslur frá Erni í júní og júlí 2024 og nafn hans var á áhafnarskrá fyrir júní. Engin flug voru þó skráð á hann. Fjármálastjóri Ernis sagði greiðslurnar hafa verið uppgjör á áunnum orlofslaunum, þótt það kæmi ekki fram á launaseðlum.
Dómurinn taldi ósannað að Ernir hefði fallið frá uppsögninni. Greiðslurnar og áhafnarskráin sýndu heldur ekki fram á að maðurinn hefði verið í ráðningarsambandi við Mýflug þegar hann veiktist.
Var á lista sem sendur var tryggingafélagi
Daginn eftir að maðurinn fékk heilablæðingu sendi framkvæmdastjóri Mýflugs tölvupóst til tryggingafélags. Þar sagði að félagið hefði bætt við sig sex fyrrverandi flugmönnum Ernis frá 1. júní og óskað var eftir að þeim yrði bætt á líf- og skírteinistryggingu félagsins frá þeim degi. Maðurinn var meðal þeirra sem taldir voru upp.
Fyrir dómi sagði framkvæmdastjórinn að hann hefði þá vitað af heilablæðingunni og að um örlætisgerning hefði verið að ræða. Dómurinn benti á að engin gögn styddu þá skýringu.
Tölvupósturinn nægði engu að síður ekki til að sanna ráðningarsamband. Samskiptin hefðu farið fram án vitundar mannsins og ekki falið í sér skuldbindandi yfirlýsingu gagnvart honum um ráðningu. Ekkert lægi fyrir um vinnuframlag hans í þágu Mýflugs og engar greiðslur hefðu farið milli þeirra.
Dómurinn taldi manninn heldur ekki geta byggt rétt gagnvart Mýflugi á ákvæðum kjarasamnings Ernis um skírteinistryggingu og endurráðningu. Forsenda þess að þær skyldur færðust yfir væri að ráðningarsamningur eða ráðningarsamband hefði verið fyrir hendi þegar aðilaskiptin urðu.
Mýflug var því sýknað af kröfum mannsins. Jafnframt var hafnað kröfu hans um staðfestingu kyrrsetningargerðar frá maí 2025, en félagið hafði lagt fram 120 milljóna króna tryggingu í tengslum við hana.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗