Félög tengd hótelturni lýst gjaldþrota
Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður hefur verið skipuð skiptastjóri í þrotabúum S26 Hotel og Rauðsvíkur. Samsett mynd: mbl.is/Eggert/Karítas
Félögin S26 Hotel ehf. og Rauðsvík ehf. hafa verið úrskurðuð gjaldþrota, en þau tengjast uppbyggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Bæði félögin voru úrskurðuð gjaldþrota 9. nóvember samkvæmt lögbirtingablaðinu.
Framkvæmdir við sautján hæða turninn voru stöðvaðar 2. nóvember og verktakar sendir heim. Samkvæmt heimildum mbl.is urðu vatnsskemmdir á fjölda herbergjaeininga sem fluttar voru inn frá Póllandi.
Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður hefur verið skipuð skiptastjóri í þrotabúum, en Eva segir í samtali við mbl.is að fyrstu verkefnin snúi meðal annars að starfsfólki og leigusamningum. Þá þurfi að tryggja öryggi á byggingarsvæðinu.
Jón Árni Ágústsson er einn eigenda félaganna að baki verkefninu. Hann sagði áður í samtali við Morgunblaðið að Arion banki hefði stöðvað frekari fjármögnun og að tjónið á byggingunni virtist meira en talið var í upphafi.
Arion banki hefur áður staðfest að hann sé veðhafi í verkefninu og sagt að unnið sé að lausn málsins.
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, sagði í samtali við mbl.is 5. nóvember að borgin væri að afla upplýsinga um stöðu framkvæmdanna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗