Æðsti leiðtogi talíbana í sjaldgæfri heimsókn

Plakat með mynd af Hibatullah Akhundzada meðfram vegi í Kabúl árið 2023. AFP/Wakil Kohsar

Hibatullah Akhundzada, æðsti leiðtogi talíbana, fór í sjaldgæfa heimsókn til Kabúl, höfuðborgar Afganistans, í dag og fagnaði þeirri „óvenjulegu atburðarás“ sem kom honum til valda.

Akhundzada, sem hefur aðsetur í Kandahar, suðurhluta landsins þar sem hreyfing talíbana á sér sterkustu rætur, hefur stjórnað Afganistan með tilskipunum í meira en fimm ár.

„Nú þegar íslam hefur sigrað, íslömsku kerfi hefur verið komið á og Íslamska furstadæmið fer með völdin, er nauðsynlegt að hjálpa fólki að skilja hið sanna eðli Íslamska furstadæmisins“ Afganistan, sagði Akhundzada í Kabúl-háskóla, að því er kom fram í beinni hljóðútsendingu stjórnvalda.

Akhundzada tók við forystu talíbana fyrir áratug og hefur aðeins örfáum sinnum heimsótt Kabúl á undanförnum árum.

Umfangsmikil öryggisaðgerð fór af stað í aðdraganda þátttöku hans í ráðstefnunni í Kabúl, sem fjallaði um áhrif tilskipana hans, og mannmörgum eftirlitsstöðvum var komið upp í kringum fundarstaðinn.

Vígamenn talíbana standa vörð við Kabúl-háskóla árið 2022.

Vígamenn talíbana standa vörð við Kabúl-háskóla árið 2022. AFP/SWakil Kohsar

Blaðamenn AFP sáu leyniskyttur á þökum bygginga umhverfis Kabúl-háskóla, tugi Humvee-bifreiða gæta hliðanna og leyniþjónustumenn á vakt á svæðinu.

Kabúl-háskóli hefur verið lokaður frá því á sunnudag, að sögn starfsfólks og nemenda við AFP, en íbúar á svæðinu sögðu að leitað hefði verið á heimilum þeirra.

Meðal þeirra þúsunda sem sóttu ráðstefnuna voru háttsettir embættismenn og fræðimenn, að sögn ráðuneytis æðri menntunar í gær.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅