Reynir að stela þjálfara frá Chelsea
Thomas Frank nýr stjóri Crystal Palace er þegar farinn að huga að því að styrkja þjálfarateymi félagsins.
Samkvæmt The Sun vill Daninn fá Bernardo Cueva, sérfræðing í föstum leikatriðum hjá Chelsea, með sér á Selhurst Park.
Cueva, sem er 39 ára Mexíkói, starfaði áður með Frank hjá Brentford í fjögur ár og átti þátt í að koma félaginu upp í ensku úrvalsdeildina.
Hann gekk til liðs við Chelsea árið 2024 þegar Enzo Maresca tók við liðinu og hefur haldið starfi sínu þrátt fyrir þjálfaraskipti.
Xabi Alonso, núverandi stjóri Chelsea, ákvað að halda Cueva í breyttu hlutverki síðasta sumar.
Frank vill hins vegar fá hann sem aðstoðarþjálfara hjá Palace.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗