Stjörnuprýtt kveðjupartý Arons Einars fram eftir nóttu - Aron tók lagið með sinni uppáhalds hljómsveit

Það var mikið um dýrðir í gær þegar haldið var kveðjupartý fyrir Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi fyrirliða íslenska karlalandsliðsins, sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.

Aron Einar lék í gær sinn síðasta landsleik, hann spilaði þá sinn 113 landsleik og jafnaði leikjamet landsliðsins. Aron var leikmaður landsliðsins í átján ár og lengst af sem fyrirliði.

Fjöldi fyrrverandi og núverandi landsliðsmanna mætti til að fagna glæsilegum landsliðsferli Arons og rifja upp góðar stundir.

Á meðal gesta voru Hannes Þór Halldórsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Kári Árnason, Ólafur Ingi Skúlason, Gylfi Þór Sigurðsson og Ögmundur Kristinsson.

Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ

Allir voru þeir hluti af þeirri sögulegu kynslóð íslenskra landsliðsmanna sem komst á Evrópumótið í Frakklandi árið 2016 og heimsmeistaramótið í Rússlandi árið 2018.

Flestir leikmenn núverandi landsliðs létu einnig sjá sig ásamt fjölmörgum úr starfsliði landsliðsins.

Tónlistin var ekki af verri endanum en tónlistarmaðurinn Saint Pete var á svæðinu.

Þá vakti sérstaka athygli þegar Aron Einar sjálfur tók lagið með rappsveitinni Úlfi Úlfi og sýndi þar á sér aðra hlið en knattspyrnuáhugamenn eiga að venjast. Aron hefur lengi haft mikið dálæti á hljómsveitinni úr Skagafirði.

Aron Einar var um árabil einn helsti leiðtogi íslenska landsliðsins og fyrirliði þess á stærstu stundum íslenskrar knattspyrnusögu.

Kveðjupartýið var því kærkomið tækifæri fyrir gamla samherja og vini til að koma saman og fagna merkilegum kafla í sögu íslenska landsliðsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅