Fólk naut þess að sjá ferilinn minn hrynja
Dianna Russini, fréttakona sem fjallar um amerískan fótbolta, segir að fólk hafi notið þess að horfa á feril hennar hrynja eftir að myndir birtust af henni þar sem hún hélt í hönd Mike Vrabel, þjálfara New England Patriots, og faðmaði hann.
„Ég held að fólk hafi notið þess að horfa á feril minn hrynja,“ sagði hún í viðtali við People.
Bæði eru gift og lýstu atvikinu sem saklausu. Russini sagði upp störfum hjá The Athletic eftir að miðillinn hóf rannsókn á málinu.
„Þetta var stjórnlaus lest og það var ekkert sem ég gat gert til að stöðva hana,“ sagði hún.
Russini snýr nú aftur að umfjöllun um NFL-deildina með þættinum The Russini Report og með því að koma fram í hlaðvarpi Jons Weiners, Nobody’s Safe.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗