Nýr James Bond er harður stuðningsmaður liðs í ensku deildinni
Breski leikarinn Robert Pattinson hefur verið valinn til að leika James Bond í næstu kvikmynd um njósnarann fræga. Pattinson er mikill stuðningsmaður Arsenal en val hans á uppáhaldsleikmanni félagsins kemur nokkuð á óvart.
Pattinson, sem er fertugur, tekur við hlutverkinu af Daniel Craig sem lék Bond í fimm kvikmyndum á fimmtán árum.
Leikarinn hefur lengi haldið með Arsenal og hefur meðal annars sést á Emirates-leikvanginum.
Í viðtali á síðasta ári var Pattinson spurður hvaða leikmann Arsenal hann myndi helst vilja klóna.
„Ég þyrfti að fara aftur til svona 1995,“ sagði hann áður en hann nefndi Frakkann Emmanuel Petit.
Petit lék með Arsenal á árunum 1997 til 2000 og vann meðal annars ensku úrvalsdeildina með félaginu.
Pattinson hefur áður viðurkennt að hann sé sjálfur afar lélegur í fótbolta og óttist jafnvel að sparka bolta til baka þegar börn eru að leika sér.
Hann er ekki fyrsti Bond-leikarinn sem heldur með ensku knattspyrnuliði en Daniel Craig er harður Liverpool-maður.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗