Segir frá „geðveiku“ augnabliki í jarðskjálfta - Ákvað þá að skilja við eiginmanninn
„Eitt sinn vorum við á veitingastað þegar jarðskjálfti reið yfir. Allir voru að hugsa um maka sína; fólk stóð upp og faldi sig annaðhvort undir borðum, fór í dyragættir eða gerði eitthvað álíka,“ rifjar konan upp. „En eiginmaður minn spratt upp frá borðinu og hljóp í burtu.“
Þannig lýsir Evan Lexis Oliver augnablikinu þegar hún fór að efast um hjónaband sitt. Myndband hennar hefur vakið mikla athygli á TikTok, en þar deilir hún átakanlegri sögu að baki skilnaði sínum.
Oliver segir að eiginmaður hennar hefði falið sig í dyraopi hinu megin í veitingastaðnum, fjarri þeim stað þar sem þau sátu, án þess að veita henni nokkra athygli, á meðan aðrir gestir höfðu leitað skjóls saman.
Sem betur fer slasaðist enginn þegar jarðskjálftinn gekk yfir, en Oliver sagði að jafnvel þjónninn hefði tjáð sig um þessar undarlegu aðstæður.
„Þjónninn kom til mín og spurði: „Heyrðu, er allt í lagi með þig? Ég held að jarðskjálftinn sé búinn, en er allt í lagi?“ og ég svaraði: „Já, já, já, þetta er allt í lagi.“ Hann sagði þá: „Þetta var skrýtið... hann bara fór frá þér.““
Oliver viðurkenndi hversu niðurlægjandi aðstæðurnar voru, en áttaði sig um leið á því, í gegnum hugleysi eiginmannsins, hversu lítinn hug hann bar til hennar.
„Þetta var virkilega skrýtið og mjög vandræðalegt,“ rifjaði hún upp. „Hann hugsaði alls ekki um mig... það varð jarðskjálfti, þú flúðir, og ég var bara eitthvað sem þú hugsaðir um eftir á? Þetta er algjör klikkun.“
Myndbandið vakti mikla athygli; það hefur fengið 1,3 milljónir áhorfa, 201.900 hafa líkað við það og tæplega 3.000 athugasemdir þegar þetta er skrifað. Í athugasemdunum deildu netverjar sögum af því hvað varð til þess að hjónabönd þeirra enduðu með skilnaði.
„Við vorum í brúðkaupi. Ég fann ekki veskið mitt. Hann var að tala við einhvern og ég spurði hann hvort hann hefði séð veskið mitt. Hann sagði: „Já, það er þarna.“ Þegar ég gekk í burtu heyrði ég hann segja: „Þetta ætti að halda henni upptekinni,““ sagði einn netverji.
„Ég er fegin að hann sé fyrrverandi þinn. Einu sinni fór reykskynjarinn okkar í gang. Fyrrverandi minn ruddist framhjá mér og hljóp út um bakdyrnar. Ég varð algjörlega orðlaus. Ég stóð bara þarna í stofunni minni. Þetta var falsviðvörun, en þetta opnaði sannarlega augu mín,“ skrifaði önnur kona í athugasemd.
Aðrir bentu á að saga Oliver væri óhugnanlega lík söguþræðinum í kvikmyndinni Force Majeure. Þessi sænska gamanmynd frá árinu 2014 fjallar um spennu í hjónabandi fjölskyldu þegar eiginmaðurinn flýr til að bjarga eigin lífi í snjóflóði og skilur eiginkonu sína og börn eftir til að bjarga sér sjálf.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗