Luku prufuveiðunum um helgina
Northern Osprey III hefur verið sjö vikur hjá Slippnum DNG og að öllum líkindum á förum í dag. mbl.is/Þorgeir
Kanadíski rækjutogarinn MV Northern Osprey III sem breytt hefur verið í fjölveiðiskip hjá Slippnum DNG á Akureyri heldur að líkindum af landi brott í dag.
Með búnaði til rækjuveiða og er nú kominn búnaður til bolfiskveiða og -vinnslu.
Togarinn er fyrsta erlenda fiskveiðiskipið sem fengið hefur leyfi til prufuveiða að loknum breytingum í íslenskri skipasmíðastöð, en þær fóru fram sl. sunnudag undir eftirliti Fiskistofu.
Nýttu helming heimildar
Skipið hafði heimild til að veiða allt að fjögur tonn í einu holi en aflinn var um helmingur af því.
„Þetta gekk í rauninni alveg ótrúlega vel, sérstaklega miðað við að allur búnaður var nýr, veiðarfæri, vinnslulína og svo sjómenn sem til þessa hafa bara veitt rækju,“ segir Orri Fannar Jónsson, verkefnastjóri hjá Slippnum DNG.
Rækjutogarinn kanadíski kom til landsins án veiðarfæra og fékk nýtt troll hjá Hampiðjunni. mbl.is/Þorgeir
Hann segir að farið hafi verið út á laugardag, en svo beðið við mynni Eyjafjarðar þar til morguninn eftir svo að birta til veiðanna væri góð.
Fyrsti þorskurinn sem skipið sér
„Maður sá á mannskapnum að þeir voru gríðarlega spenntir fyrir þessu, enda í fyrsta sinn sem þorskur kemur um borð í þetta skip. Það voru myndaðir í bak og fyrir sex til sjö kílóa þorskar sem komu upp.“
Orri segir verkinu lokið og það sé nýbreytni að ekki þurfi að senda fólk út til að prófa búnaðinn þar.
„Það eru sóknarfæri í þessu og við finnum strax fyrir áhuga hjá fleirum.“
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

