Gagnrýnir bannið fyrir banaslysið

Jesus Owono lenti á framherjanum sem lést.

Jesus Owono lenti á framherjanum sem lést. AFP/Gabriel Bouys

Gerard Piqué, fyrrverandi varnarmaður Barcelona og spænska landsliðsins í fótbolta, hefur gagnrýnt tólf leikja bann sem markvörðurinn Jesús Owono fékk, að því er BBC Sport greinir frá.

Owono var dæmdur í bannið í kjölfar áreksturs sem leiddi til dauða Jesús de Miguel, framherja Tenerife, í spænsku B-deildinni.

Piqué, sem á FC Andorra, lýsti atvikinu sem slysi og hélt því fram að markvörður félagsins ætti ekki skilið þyngstu refsingu.

„Hvað er verið að refsa fyrir, atvikið sjálft eða afleiðingarnar?“ spurði hann í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum.

De Miguel, sem var 30 ára, lést 3. nóvember, daginn eftir áreksturinn. Aganefndin gat aðeins lagt mat á brotið á vellinum en ekki banvænar afleiðingar þess.

Piqué sagði að Owono þyrfti töluvert lengri tíma til að verða tilbúinn að snúa aftur til keppni en sem næmi leikbanninu. „Engin refsing mun færa okkur [De Miguel] aftur,“ sagði hann.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅