„Sýnir að við eigum ekki heima í þessari deild“
Hákon Rafn Valdimarsson hlýðir á þjóðsönginn með liðsfélögum sínum í kvöld. mbl.is/Eggert Johannesson
Ég er gríðarlega sáttur og það er vel gert að hafa komið í þessa tvo leiki og unnið þá,“ sagði Hákon Rafn Valdimarsson markvörður Íslands eftir 3:0-sigur á Lúxemborg í lokaleik liðsins í Þjóðadeildinni. Ísland vinnur C-deild keppninnar og er komið í B-deild keppninnar.
„Auðvitað hefðum við viljað gera betur í síðasta verkefni þar sem við gerðum jafntefli. En auðvitað er frábært að enda þessa deild með tveimur stórum sigrum,“ sagði Hákon spurður út í niðurstöðu liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Varnarleikur íslenska liðsins hefur verið góður á þessu móti og þú hefur fengið afar fá mörk á þig. Þú hlýtur að gera kröfu um að vera markvörður númer eitt hjá íslenska landsliðinu, eða hvað?
„Jú, jú. Þannig séð. Auðvitað er þetta samt C-deild. Þessi niðurstaða sýnir að við eigum ekki heima í þessari deild og erum mikið betri en hin liðin í þessari deild. Núna þurfum við bara að taka næsta skref og sýna að við eigum fullt erindi í liðin sem eru í b-deildinni og jafnvel enn betri en þau.“
Næsta mál hlýtur að vera undankeppni EM 2028. Þar fáið þið líklega veglegri verkefni að etja kappi við. Hlakkar þú til að fá meira krefjandi verkefni milli stanganna í landsliðinu?
„Já, líka bara að fá leiki sem skipta enn meira máli en eru í þessari deild. Ég er bara spenntur fyrir því og ég hlakka til að sjá hvaða liðum við mætum þar.“
Ætlið þið að gera alvöru tilkall til sætis í lokakeppni EM 2028?
„Já, við verðum að gera það. Okkur tókst ekki að gera alvöru tilkall í síðustu undankeppni EM þannig að við þurfum að gera betur núna,“ sagði Hákon Rafn í samtali við mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗