Barnalán hjá Jóni Daða og Maríu Ósk

Fjölskyldan stækkar í vor.

Fjölskyldan stækkar í vor. Ljósmynd/Facebook/María Ósk

Jón Daði Böðvarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, og eiginkona hans, María Ósk Skúladóttir, eiga von á sínu þriðja barni næsta vor.

Hjónin greindu frá tíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram. Með henni birtu þau fjölskyldumynd þar sem börnin þeirra tvö taka þátt í að kynna væntanlega viðbót við fjölskylduna.

„One more blessing,“ skrifa þau með myndinni og bæta við að barnið sé væntanlegt næsta vor.

Jón Daði lagði knattspyrnuskóna á hilluna í ágúst, 34 ára að aldri, eftir langan atvinnumannsferil erlendis.

Hann lék 64 landsleiki fyrir Ísland og var í landsliðshópunum á EM í Frakklandi árið 2016 og HM í Rússlandi tveimur árum síðar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅