Pochettino vill lærisvein sinn hjá bandaríska landsliðinu til United

Helgi Fannar Sigurðsson

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 09:00

Weston McKennie og Trump í Hvíta húsinu.

Manchester United hefur áhuga á að fá Weston McKennie, miðjumann Juventus, í janúar. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport greinir frá þessu.

Mauricio Pochettino, nýr stjóri United, þekkir McKennie vel eftir að hafa þjálfað hann hjá bandaríska landsliðinu og er sagður vilja fá hann á Old Trafford.

McKennie er 28 ára og hefur leikið 241 leik fyrir Juventus. Hann framlengdi samning sinn við félagið fyrr á árinu til 2030.

Juventus vill helst halda Bandaríkjamanninum og gæti þurft hátt tilboð til að fá forráðamenn félagsins til að íhuga sölu í janúar. 

McKennie hefur áður leikið í ensku úrvalsdeildinni, á láni með Leeds.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅