Jón Páll var 19 ára þegar hann fór einn til Grikklands með fullt af peningum - „Hvað er ég að gera?“
Jón Páll Halldórsson listamaður segist innilega þakklátur fyrir að hafa farið einn til Grikklands aðeins 19 ára gamall með fullt af peningum til að læra að verða húðflúrari. Jón Páll, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir að í Grikklandi hafi hann fengið lærdóminn sem svo varð grunnurinn að starfsferli hans:
„Ég var í myndlista- og handíðaskólanum upp úr 1990 og Red Hot Chili Peppers voru nýkomnir á sjónarsviðið og voru mestu töffararnir. Tattoo-ið var nýorðið vinsælt og þeir tóku það aðeins upp á annað level. Þarna sá maður tattoo sem höfðu aldrei sést áður og ég man að þetta kveikti alveg í mér. Það eru einhverjir nýir straumar í gangi þarna og aðaltöffararnir voru farnir að flúra sig. Ég var á bakpokaferðalagi í Grikklandi og fékk mér tattoo þar og lenti á spjalli við þann sem flúraði mig og fékk nafnspjaldið hans.“
Upphaf
„Svo eftir fyrsta árið í skólanum sá ég einhvern vegin ekki fyrir mér að ég yrði hefðbundinn listamaður, en mig langaði samt að teikna og lifa af því. Ég var að skoða ,,animation“ og teiknimyndir og fleira, en vissi ekki alveg hvað ég vildi gera. En var alltaf með þetta nafnspjald og endaði á að hringja í gæjann og spyrja hvort hann vildi kenna mér að verða húðflúrari. Fyrsta svarið hans var bara hreint nei og það var í raun mjög erfitt að komast inn í þetta fag á þessum tíma,“ segir Jón Páll, sem gafst samt ekki upp:
,,Ég prófaði að bjóða honum bara pening fyrir að kenna mér og þá opnaðist hann aðeins. Pabbi hans átti stofuna og hann var af gamla skólanum og samþykkti þetta bara strax um leið og það var peningur í boði. Ég var bara nýorðinn 19 ára og man að ég var skíthræddur þegar ég fór út. Aþena á þessum tíma var frekar ,,shady“ borg og mörg hverfi sem voru frekar vafasöm. En þarna mætti ég blautur á bak við eyrun með 600 þúsund krónur í ferðatékkum inni á pungnum.“
„Fyrstu nóttina man ég að ég hugsaði bara ,,Hvað er ég að gera?“. Ég hugsaði hvort þeir myndu ekki bara taka af mér ferðatékkana daginn eftir og henda mér svo ofan í einhvern skurð. En svo var þetta bara yndislegt fólk og dásamleg fjölskylda og ég var bara einn af fjölskyldunni í þennan tíma sem ég var þarna. Þau kenndu mér allt sem ég þurfti og ég kom svo bara heim og opnaði strax Tattoo-Stofu.“
Jón Páll hefur verið í faginu í áraraðir og hann segir að það geti orðið til ansi náið samband á milli húðflúrara og skjólstæðinga þeirra. Það að sitja með einhverjum klukkutímum saman og stinga í viðkomandi nál brjóti einhvern vegin niður ákveðnar varnir:
,,Það er mjög algengt að fólk sem situr lengi í stólnum hjá manni sé farið að deila með manni mjög persónulegum hlutum og það verður fljótt ákveðið trúnaðarsamband. Þegar þú ert að flúra einhvern þá ert þú kominn inn fyrir varnirnar á ákveðinn hátt. Þetta getur verið erfitt og það að hleypa einhverjum í að vera að flúra þig klukkutímum saman er ansi náið og persónulegt. Maður situr kannski með viðkomandi í marga klukkutíma í einu í marga daga. Ég á orðið marga góða vini sem komu upphaflega til mín sem kúnnar í húðflúr,“ segir Jón Páll og segir það að halda einbeitingu við að flúra vera eitthvað sem kemur með tímanum:
,,Þetta er bara æfing. Þeir sem eru að byrja geta oft ekki verið nema 1-2 klukkutíma í einu og þá er einbeitingin bara alveg búin og það þarf að fara heim að leggja sig. Ég var í byrjun oft að miða við að taka ekki lengri en 4 tíma session í einu og þá var ég alveg búinn, en svo var það komið upp í 6 klukkutíma og þá varð það að nýjum þröskuldi og svo framvegis. Ég hef mest tekið 13 klukkutíma session í einu þar sem ég stoppaði bara til þess að fá mér smá kaffi og mat að narta. Maður vill ekki taka of langa pásu í einu af því að þá kólnar skjólstæðingurinn og þá verður erfitt að byrja aftur. En oftast er ég að miða við að taka ekki lengri en 6-7 klukkutíma session í einu.“
Vargöld
Jón Páll gaf nýlega út þriðju bókina af myndasögubálknum Vargöld ásamt Þórhalli Arnórssyni, þar sem þeir kafa djúpt ofan í norræna goðafræði í gegnum teiknimyndasögur þar sem Jón Páll sér um að teikna, en Þórhallur að gera textann:
,,Þetta er þríleikur sem myndar þessa sögu. Þetta er í raun goðafræðin og víkingarnir og kemur þannig til að Þórhallur, sem er einn besti vinur minn, kemur til mín með þessa hugmynd. Við höfðum alltaf haft áhuga á ,,comics” og teiknimyndasögum og höfðum unnið saman í Latabæ meðal annars. Hann vildi byggja þetta á alvöru heimildum og segja alvöru ekta söguna. Við erum búnir að leggja mjög mikla vinnu í þetta og höfum gert þetta af miklum heilindum og alvöru áhuga.“
„Núna eftir að bók þrjú er komin út erum við komnir á þann stað að fara að skoða að koma þessu fyrir alvöru á markað erlendis líka. Við höfum verið 12 ár að gera þessar 3 bækur og það hefur tekið mikinn tíma og vinnu að klára þetta verkefni. Ég hef stundum verið alveg upp í 3-4 daga að teikna eina síðu. Ég missti mig stundum algjörlega í smáatriðunum og gleymdi alveg tímanum. En það er frábær tilfinning að vera búinn að klára þetta verkefni og að hafa lagt sig allan fram.“
Hægt er að nálgast viðtalið við Jón Pál og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗