Hátt í 2.000 umsagnir bárust um framfærslu útlendinga
Rúmlega 1.800 umsagnir bárust í samráðsgátt um drög dómsmálaráðherra að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. Frestur til að senda inn umsögn er nú liðinn.
Í reglugerðinni er skýrt kveðið á um trygga framfærslu þeirra sem sækja um dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt. Verði hún samþykkt verður það í fyrsta skipti sem ákveðin upphæð er bundin í reglugerð á Íslandi en sambærilegar reglur gilda á hinum Norðurlöndunum.
Upphæðin sem miðað er við hækkar umtalsvert. Í reglugerðardrögunum er lagt til að grunnfjárhæð framfærslu verði 501.186 þúsund krónur, miðað við núverandi viðmiðunarfjárhæðir. Hjón þurfa 1,6 falda grunnfjárhæð til að uppfylla skilyrðin og 150 þúsund krónur bætast við fyrir hvert barn. Þetta er breyting frá því sem verið hefur þar sem engin viðbótarkrafa hefur verið gerð vegna barna.
Umtalsverð hækkun
Fram til þessa hefur Útlendingastofnun sjálf birt viðmið á vef sínum sem samsvarar grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar eða 259.951.
Fyrir einstætt foreldri með tvö börn hækkar framfærsluviðmiðið því til að mynda úr 259.951 krónu í 801.897 krónur, sem er sama upphæð og gerð er krafa um fyrir barnlaus hjón en samkvæmt núverandi regluverki er gert ráð fyrir 415.922 krónum fyrir barnlaus hjón.
Hjón með þrjú börn munu nú þurfa framfærslu upp á 1.252.964 en þurftu áður aðeins 415.922 krónur. Hækkunin er því umtalsverð.
Reglugerðin tekur ekki til dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða en lögin heimila að útgáfa slíkra dvalarleyfa sem og endurnýjanir séu án framfærsluskilyrða.
Ósamræmi við lágmarkslaun
1.828 umsagnir bárust um reglugerðina. Meðal þeirra sem sent hafa inn umsagnir eru Knattspyrnufélag Íslands (KSÍ), sprotafyrirtækið Into the Blue ehf., NPA-miðstöðin, Stúdentaráð Háskóla Íslands, frjálsu félagasamtökin Women Tech Iceland, Listaháskóli Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, ÖBÍ-réttindasamtök og fleiri.
KSÍ telur rétt að skoða hvort svigrúm sé til að miða við lægri lágmarksfjárhæð framfærslu vegna erlends íþróttafólks og þjálfara sem dvelja hér á landi á vegum íslenskra íþróttafélaga.
Into the Blue lýsir áhyggjum af því að erfiðara verði fyrir rannsakendur og frumkvöðla að taka þátt í mikilvægri uppbyggingu nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi.
NPA-miðstöðin bendir á að hækkun framfærsluviðmiða geti skapað verulegar hindranir fyrir fólk af erlendum uppruna sem vilji starfa á Íslandi og fjölmargar starfsgreinar reiði sig á erlent vinnuafl, þar á meðal persónuleg aðstoð við fatlað fólk og fólk í þjónustustörfum. NPA-aðstoðarfólk starfi í mismunandi starfshlutföllum á grundvelli gildandi kjarasamninga.
Þá sendi fjöldi fólks umsagnir í eigin nafni. Þar er helst bent á að framfærsluviðmiðin séu of há og í ósamræmi við lágmarkslaun hér á landi. Það komi til með að bitna t.d. á fólki í láglaunastörfum, fólki með breytilegar tekjur, eins og listamönnum, og námsmönnum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/92/1689257.jpg)