Hætta umfjöllun um elstu manneskju Danmerkur
TV Midtvest, sem hingað til hefur fjallað ítarlega um elstu núlifandi manneskju Danmerkur bæði í sjónvarpsinnslögum og greinum, hættir nú frekari umfjöllun um líf hennar.
Þetta upplýsir miðillinn í samtali við Radio IIII.
Ákvörðunin er tekin eftir að Frihedsbrevet greindi frá því að hin 112 ára gamla Kirsten Schwalbe hefði ekki aðeins verið félagi í danska nasistaflokknum í síðari heimsstyrjöldinni heldur einnig gegnt hlutverki staðbundins deildarhópstjóra í flokknum, að því er danska ríkisútvarpið greindi frá.
„TV Midtvest hefur verið í samskiptum við fjölskyldu Kirsten Schwalbe, sem hefur gert ljóst að fjölmiðlaumfjöllun undanfarið hafi haft mikil áhrif á hana og að hún þurfi ró heilsu sinnar vegna. Sem blaðamenn berum við ábyrgð á því að taka tillit til viðkvæmrar stöðu fólks,“ segir í skriflegri tilvitnun frá aðalritstjóra TV Midtvest, Marc Kiligren Akselsen, til Radio IIII.
Það þýðir meðal annars að ekkert verður af fyrirhuguðum lokaþætti þáttaraðarinnar „Kirstens vilde år“.
„Við höfum ákveðið að taka ekki upp meira efni eða taka fleiri viðtöl við Kirsten að sinni,“ segir aðalritstjórinn.
Hefur áður staðfest aðild
Í umfjöllun Frihedsbrevet um málið kemur fram að Kirsten Schwalbe hafi gegnt starfi deildarhópstjóra í deild danska nasistaflokksins, DNSAP, í Holstebro frá ágúst 1943 til júlí 1944, auk þess sem hún mun einnig hafa verið svokallaður kvennahópstjóri á sama tímabili.
Kirsten Schwalbe hefur áður staðfest að hún hafi verið félagi í flokknum en að það hafi eingöngu verið vegna eiginmanns hennar sem hafði hvatt hana til að ganga í hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗