Þungt högg fyrir Pútín: Mikilvæg brú sögð hrunin eftir árásir Úkraínumanna

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 08:45

Myndin sem Mykola Lukashuk birti í morgun virðist sýna miklar skemmdir á brúnni. mykola_lukashuk/Telegram

Hluti Kertsj-brúarinnar, sem tengir Krímskaga við meginland Rússlands, er sagður hafa hrunið í sjóinn eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna síðasta sólarhringinn.

Rússnesk stjórnvöld hafa staðfest að alvarlegar skemmdir hafi orðið á brúnni. Fjallað er um þetta á vef Sky News.

Mykola Lukashuk, formaður héraðsráðs Dnipropetrovsk í Úkraínu, greindi frá því á Telegram í morgun að annar af tveimur brúarbogum mannvirkisins hefði hrunið í sjóinn. Hann birti jafnframt ljósmynd sem virðist sýna umfangsmiklar skemmdir.

Kertsj-brúin er eitt mikilvægasta samgöngumannvirki Rússa á svæðinu og hefur gegnt lykilhlutverki í tengingum Rússlands við Krímskaga, sem Rússar innlimuðu árið 2014 í trássi við alþjóðalög.

Brúin er um 19 kílómetra löng og um hana fara bæði bílar og lestir. Hún hefur einnig haft hernaðarlega þýðingu fyrir Rússa vegna flutninga á hergögnum til og frá Krímskaga.

Brúin hefur verið eitt helsta stolt Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og er jafnframt áberandi tákn um yfirráð Rússa á Krímskaga.

Samkvæmt Sky News var bæði bíla- og lestarumferð stöðvuð eftir árásirnar. Rússneska samgönguráðuneytið segir að enginn hafi særst í árásunum á brúna sjálfa.

Rússnesk stjórnvöld á Krímskaga greindu hins vegar frá því að tveir hefðu látið lífið í drónaárásum á skaganum í nótt.

Umfangsmiklar árásir á báða bóga hafa einkennt síðasta sólarhring. Rússneska varnarmálaráðuneytið heldur því fram að loftvarnarkerfi landsins hafi grandað yfir 1.400 drónum, þar af yfir 300 sem beint var að höfuðborginni Moskvu.

Á sama tíma gerðu Rússar umfangsmiklar eldflauga- og drónaárásir á úkraínskar borgir, þar á meðal höfuðborgina Kænugarð.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅