Aðsend grein: „Þorgerður nennir þessu bara ekki lengur“

Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Aðsend grein úr Morgunblaðinu

„Málið er ekki flókið í raun. Þorgerður nennir þessu bara ekki lengur. Eftir tapið í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefur hún verið meira eða minna erlendis í einhverjum ferðum sem hún hefði auðveldlega getað sleppt eða látið aðra fara fyrir sig. Á meðan brennur flokkurinn og henni virðist vera alveg sama. Allavega er ekkert tekið á málunum. Þetta er allt að liðast í sundur. Þar með talið ríkisstjórnarsamstarfið,“ sagði gamalgróinn og innmúraður Viðreisnarmaður við mig í gær.

Tveir þingmenn hafa sagt skilið við þingflokk Viðreisnar á innan við mánuði sem kunnugt er. Jón Gnarr í október og Ingvar Þóroddsson tilkynnti síðan í gær að hann hefði gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Haft var eftir honum í fjölmiðlum að hann hefði verið kominn á fremsta hlunn með að yfirgefa Viðreisn þegar Jón hefði tilkynnt úrsögn sína úr þingflokknum og því lofað forystunni að bíða með það. Viðræður við forystu Sjálfstæðisflokksins hefðu hafizt eftir útgöngu Jóns.

Fleiri fylgi mögulega í kjölfarið

Fram kom í yfirlýsingu Ingvars í gær að í grunninn væri hann frjálslyndur, hægrisinnaður landsbyggðarþingmaður. Taldi hann þar upp fjölmörg mál ríkisstjórnarinnar sem væru að hans mati allt annað en frjálslynd og ekki í samræmi við það sem Viðreisn og hann sjálfur hefði talað fyrir í aðdraganda síðustu þingkosninga. Orð Ingvars kallast þannig á við gagnrýni Jóns á þingflokkinn og stjórnarsamstarfið en hann sagðist hafa viljað sjá meiri áherzlu á einstaklings- og athafnafrelsi.

Haft er eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur formanni Sjálfstæðisflokksins í fjölmiðlum í gær aðspurðri að fleiri stjórnarþingmenn hefðu rætt við hana að fyrra bragði um að ganga mögulega til liðs við flokkinn. Ingvar er ekki sá þingmaður sem talinn var líklegastur til þess að yfirgefa þingflokk Viðreisnar í kjölfar Jóns. „Ég er hræddur um að fleiri fylgi í kjölfarið miðað við móralinn í þingflokknum. Hann var slæmur en versnaði eftir þjóðaratkvæðið,“ sagði Viðreisnarmaðurinn.

Til marks um alvarleika málsins

Til marks um það hversu alvarleg staðan er orðin greindi Ríkisútvarpið frá því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar hefði hætt við að fara á fund utanríkisráðherra EES-ríkja með Evrópusambandinu í Brussel en hún hefði átt pantað flug þangað í dag. Þess í stað færi Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri í hennar stað. Eftir að Jón yfirgaf þingflokkinn fór Þorgerður hins vegar í tveggja vikna ferð um Suðaustur-Asíu sem Martin hefði vel getað séð um.

Mikil orka Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, hefur farið í að miðla málum á milli Viðreisnar og Flokks fólksins. Í vaxandi mæli. Inga Sæland, menntamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, hefur oftar en einu sinni hótað stjórnarslitum ef hún fengi ekki það sem hún vildi. Hún fékk til að mynda samþykkt að greiðslur almannatrygginga fylgdu launavísitölu gegn því að þjóðaratkvæðinu um Evrópusambandið yrði flýtt.

Verður stjórnin minnihlutastjórn?

Meirihluti ríkisstjórnarinnar á Alþingi hefur nú minnkað um þrjá þingmenn árinu áður en kjörtímabilið er hálfnað, en auk Ingvars og Jóns yfirgaf Guðmundur Ingi Kristinsson Flokk fólksins í vor. Meirihlutinn er nú 33 þingmenn í stað 36 áður. Ekki vantar því mikið upp á að stjórnin verði að minnihlutastjórn en til þess að hafa þingmeirihluta þarf minnst 32 þingmenn. Stjórnin er þannig farin að minna á vinstristjórnina 2009-2013 sem varð að lokum minnihlutastjórn.

Hins vegar var það ekki fyrr en undir lok kjörtímabilsins sem sú stjórn varð að minnihlutastjórn. Hún sat út kjörtímabilið fyrst og fremst vegna þess að forystumenn hennar vildu ekki vera nuddað upp úr því enn eina ferðina að engin vinstristjórn hefði setið heilt kjörtímabil. Stjórnin var þó lifandi dauð undir lokin. Ekkert slíkt heldur núverandi stjórn saman. Ingvar nefndi meðal annars endalaus hrossakaup og málamiðlanir sem ástæðu þess að hann sagði skilið við Viðreisn.

„Við vorum í raun alein í þessu“

Haft hefur einnig verið á orði að ríkisstjórnin sé einnig farin að minna á síðasta stjórnarsamstarf þar sem sífellt meiri óánægju gætti innan Sjálfstæðisflokksins vegna endalausra málamiðlana og eftirgjafar gagnvart Vinstri grænum sem að lokum leiddi til þess að stjórnin sprakk. Viðreisn sé þar í hlutverki Sjálfstæðisflokksins og Flokkur fólksins í hlutverki Vinstri grænna. Viðreisnarmaðurinn segir forsendur hafa gerbreytzt fyrir Viðreisn í kjölfar þjóðaratkvæðisins.

„Við vorum áður tilbúin að kyngja ýmsu til þess að tryggja að þjóðaratkvæðið færi fram og síðan að því yrði flýtt. En eftir tapið í því er ákveðið lím horfið, ákveðinn hvati. Það hjálpar ekki að Kristrún beitti sér með hangandi hendi í kosningabaráttunni og Inga ekki neitt. Við vorum í raun alein í þessu. Mörg okkar upplifa það einfaldlega sem svik. Hvers vegna eigum við núna að hjálpa til við að koma málum hinna flokkanna í gegn eftir það? Þetta var stóra málið okkar.“

Fleiri eins og Ingvar enn í Viðreisn

Mér kom satt að segja á óvart að umræddur Viðreisnarmaður væri reiðubúinn að ræða umstöðuna innan Viðreisnar við mig af slíkri hreinskilni og það að fyrra bragði. Og leyfa mér að hafa það eftir honum. Þó gegn nafnleynd. Ég hef enda verið gagnrýninn á flokkinn, forystu hans og stjórnarsamstarfið. Þá höfum við ekki beinlínis verið sammála um Evrópusambandið. Spurður út í það gaf hann þá skýringu að það væri ofan á annað einfaldlega til marks um alvarleika málsins.

„Flokkurinn var stofnaður um þá grunnstefnu að ganga í ESB. Þess vegna yfirgáfu margir bæði Sjálfstæðisflokkinn og líka aðra flokka. Nú er það mál af borðinu, allavega um fyrirsjáanlega framtíð, eftir að því var klúðrað og ekki sízt af formanninum okkar. Ég skil því Ingvar vel í ljósi þess. Hann á sjálfsagt ágætlega heima innan Sjálfstæðisflokksins. Ég var aldrei í flokknum og ætla ekki þangað. En það eru margir fleiri eins og Ingvar enn í Viðreisn. Þar á meðal í þingflokknum.“

Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅