„Erum tilbúnir fyrir eitthvað stærra“

Brynjólfur Andersen Willumsson og Ísak Bergmann Jóhannesson fagna fyrsta marki Íslands í dag. mbl.is/Eggert Johannesson

„Það er geggjuð tilfinning að vera búnir að klára þetta,“ sagði Brynjólfur Andersen Willumsson leikmaður og einn af markaskorurum Íslands eftir 3:0-sigur á Lúxemborg í Þjóðadeildinni í gærkvöldi.

„Við erum heilt yfir búnir að vera flottir allan riðilinn fyrir utan tvö jafntefli en við klárum þetta fagmannlega með tveimur góðum sigrum í þessum glugga.“

Þið spilið lokaleikinn hér á Laugardalsvelli í frosti og á glerhörðum velli. Hvernig gekk það?

„Þetta voru vissulega mjög erfiðar aðstæður og það hefði verið auðvelt að láta þetta trufla sig. Við hins vegar gíruðum okkur mjög vel upp í þetta og hugsuðum lítið út í aðstæður þó svo að völlurinn hafi oft og tíðum verið sleipur. Við spiluðum bara ansi fínan fótbolta fannst mér miðað við allt.“

Þið byrjið leikinn ansi sterkt og mín tilfinning var strax sú að þið mynduð vinna leikinn. Var sama tilfinning hjá ykkur inni á vellinum?

„Já, ég fann það strax í fyrstu tveimur sóknunum okkar að þetta snérist bara um að brjóta ísinn. Það er alltaf mikilvægt að ná þessu fyrsta marki, sérstaklega gegn svona fimm manna vörn eins og þeir spiluðu en eftir fyrsta markið var þetta aldrei spurning.“

Ef þú gerir upp þessa C-deild sem þið vinnið, er Ísland kannski númeri of stórt fyrir C-deild Þjóðadeildarinnar?

„Vissulega en á sama tíma þá er aldrei grín að fara í gegnum svona keppni. Í fótbolta er ekkert sem heitir að labba í gegnum heilt svona mót. Það þarf að vinna vinnuna og við gerðum það. Núna erum við tilbúnir fyrir eitthvað stærra,“ sagði Brynjólfur í samtali við mbl.is.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅