Neyðarfundur vegna árása á Krímskagabrúna
Erlent | AFP | 17.11.2026 | 8:17
Ríkisstjórn Rússlands ætlar að halda neyðarfund eftir árásir Úkraínumanna á Krímskagabrúna.
Árásirnar, sem voru gerðar tvo daga í röð, virðast hafa valdið verulegu tjóni á brúnni, sem tengir Rússland við Krímskagann.
„Fundur stjórnarnefndar sem fjallar um afleiðingar árásarinnar á Krímskagabrúna, undir forsæti Marats Khúsnúllín aðstoðarforsætisráðherra, verður haldinn innan skamms,“ höfðu ríkisfréttastofur eftir ríkisstjórninni í yfirlýsingu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗