Sérfræðingur varpar sprengju eftir að hafa rannsakað krufningargögn Epsteins
Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi í fangaklefa árið 2019, heldur hafi hann verið myrtur.
Freeman hefur undanfarna tólf mánuði rannsakað krufningargögn Epsteins og segir áverka á hálsi hans benda frekar til kyrkingar en hengingar.
Niðurstöður Freemans ganga þvert á opinbera niðurstöðu bandarískra yfirvalda um að Epstein hafi svipt sig lífi. Frá þessu greinir The New York Times, en breska dagblaðið Daily Mail fjallar einnig um málið.
Freeman, sem er með doktorsgráður í faraldsfræði og réttarlæknisfræði, hefur undanfarna tólf mánuði rannsakað krufningargögn Epsteins að beiðni Mark Epstein, bróður hans. Sá síðarnefndi hefur lengi haldið því fram að bróðir hans hafi verið myrtur.
Epstein fannst látinn í fangaklefa í New York í ágúst 2019, þar sem hann beið réttarhalda vegna ákæru um mansal á ólögráða stúlkum í kynferðislegum tilgangi. Opinber niðurstaða yfirvalda var að hann hefði hengt sig.
Ekki eins og áverki eftir hengingu
Freeman segir að áverkarnir á líki Epsteins hafi strax vakið grunsemdir hans þegar hann skoðaði ljósmyndir úr krufningunni.
„Bíddu nú við, þetta lítur ekki út eins og áverki eftir hengingu,“ sagðist hann hafa hugsað.
Sjá einnig: Mörg bein í hálsi Epstein voru brotin:Lögmaður efast um að hann hafi framið sjálfsvíg
Hann bendir á að för eftir hengingu séu yfirleitt tiltölulega slétt og samfelld og liggi skáhallt upp eftir hálsinum. Förin á hálsi Epsteins hafi hins vegar verið djúp, óregluleg og myndað Y-laga mynstur öðrum megin.
Að mati Freemans samræmist þetta betur því að einhver hafi kyrkt Epstein en að hann hafi hengt sig sjálfur.
Freeman telur jafnframt að ljósmyndirnar sýni möguleg naglaför á hálsi Epsteins, skrámur neðst á hálsinum og ferska blæðingu í vöðva í vinstri öxl. Hann segir þessa áverka geta bent til þess að Epstein hafi veitt mótspyrnu þegar ráðist var á hann aftan frá.
Freeman vann að rannsókninni ásamt taugavísindamanninum Itiel Dror og réttarmeinafræðingnum Anders Eriksson. Þremenningarnir hafa leitað eftir því að fá niðurstöður sínar birtar í ritrýndu vísindatímariti, en þær hafa enn ekki hlotið slíka birtingu.
Ýmislegt vakti grunsemdir
Dauði Epsteins hefur lengi verið umdeildur, ekki síst vegna þess sem gerðist í fangelsinu nóttina sem hann lést.
Fangaverðirnir tveir sem áttu að fylgjast með honum sofnuðu að sögn og sinntu ekki reglubundnu eftirliti í um þrjár klukkustundir. Þá voru bilanir í eftirlitsmyndavélum og meðferð sönnunargagna eftir andlátið hefur sætt gagnrýni.
Á upptökum úr fangelsinu sást meðal annars óljós appelsínugul hreyfing í átt að fangaklefa Epsteins klukkan 22:39 kvöldið áður en hann fannst látinn. Fangar klæddust appelsínugulum fatnaði en á þessum tíma áttu þeir að vera lokaðir inni í klefum sínum. Ekki hefur verið staðfest hvað sást á upptökunni, en lík Epstein fannst átta tímum síðar.
Michael Baden, réttarmeinafræðingur sem einnig var fenginn til að fara yfir málið að beiðni bróður Epsteins, hefur áður lýst efasemdum um sjálfsvígsniðurstöðuna. Hann taldi meðal annars að snara sem fannst í klefanum samræmdist ekki áverkunum á hálsi Epsteins.
Yfirvöld standa fast á sínu
Þrátt fyrir nýjar fullyrðingar Freemans standa bandarísk yfirvöld enn við þá niðurstöðu að Epstein hafi svipt sig lífi.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið komst árið 2023 að þeirri niðurstöðu að alvarleg mistök hefðu verið gerð af starfsmönnum fangelsisins, en taldi ekkert hafa komið fram sem breytti niðurstöðunni um sjálfsvíg.
Réttarmeinafræðideild New York-borgar ítrekaði einnig í vikunni að hún stæði við fyrri niðurstöðu sína.
Kristin Roman, sem framkvæmdi krufninguna, hefur sagt að áverkarnir hafi ekki bent til þess að Epstein hefði verið kyrktur af öðrum. Hún vísaði meðal annars til þess að ekki hefðu fundist ummerki sem bentu til átaka.
Freeman er þessu ósammála og gagnrýnir sérstaklega að ekki hafi verið tekin DNA-sýni undan nöglum Epsteins.
Mark Epstein birti á mánudag ljósmyndir úr krufningargögnum bróður síns á netinu og segir Freeman þær styðja niðurstöðu sína.
Hann tekur þó fram að markmið sitt sé ekki að finna út hver kunni að hafa myrt Epstein, heldur að benda á það sem hann telur alvarlega annmarka á rannsókninni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗