Wanda með árás á konu fyrrverandi eftir þungar ásakanir á dögunum - Segir hana ekki kunna að veita munnmök

Wanda Nara, fyrrverandi eiginkona knattspyrnumannsins Mauro Icardi, hefur ráðist harkalega að núverandi kærustu hans, leikkonunni China Suarez, á samfélagsmiðlum.

Deilur kvennanna hafa blossað upp á ný eftir að myndband fór í dreifingu þar sem Wanda sést rífast við China við heimili Icardi í Argentínu. China svaraði með því að gagnrýna Wanda á Instagram og sagðist meðal annars hafa unnið fyrir öllu sem hún ætti.

Wanda svaraði fyrir sig og lét ýmislegt flakka.

Getty Images

„Árangur þinn hefur ekki einu sinni skilað þér nægum peningum til að kaupa hundakofa. Lærðu að gefa munnmök eins og ég, þá gæti þér gengið betur,“ skrifaði hún á Instagram.

Wanda sakaði China einnig um að horfa fram hjá ofbeldi gegn börnum sínum.

„Mínir hæfileikar gerðu mér kleift að koma börnunum mínum undan ofbeldi. Þú þegir hins vegar, undirgefin og heltekin af karlmanni, á meðan þú horfir upp á börnin þín ganga í gegnum það sama.“

Wanda hélt því jafnframt fram að Icardi hefði sjálfur staðið á bak við Instagram-færslur nýju kærustunnar.

„Ég var með manninum sem þú dýrkar núna í tólf ár. Trúðu mér, ég veit vel að hann notaði þig enn einu sinni. Í þetta skiptið Instagram-aðganginn þinn. Það er svo augljóst að þetta var hann. Hann þarf að komast yfir mig. Hjálpaðu honum.“

Deilurnar koma í kjölfar þess að Icardi var sakaður um að hafa beitt 11 ára dóttur sína ofbeldi. Dómstóll í Argentínu bannaði honum að hafa samband við stúlkuna í 45 daga en hann hefur alfarið hafnað ásökununum.

Wanda og Icardi skildu árið 2024 eftir stormasamt samband og hafa síðan staðið í hörðum deilum um börn sín og fjármál.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅