„Eitt versta veður sem ég hef lent í“

Þorsteinn Frímann Guðmundsson, varaformaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, hefur starfað með björgunarsveit í nærri þrjátíu ár.

Hann segir óveðrið sem geisaði á Vatnsskarði á föstudagskvöld með því versta sem hann hafi lent í á þeim tíma.

„Ég hef verið í björgunarsveit í nærri þrjátíu ár og þetta er eitt versta veður sem ég hef lent í á þeim tíma. Það sást ekki út úr augum,“ segir Þorsteinn í samtali við Ferðavef mbl.is.

Svo hvasst var á skarðinu og skafrenningurinn slíkur að á bakaleiðinni óku björgunarsveitarmenn að jafnaði á um þriggja kílómetra hraða.

Veðrið versnaði eftir að rútan komst til byggða

Björgunarsveitin var kölluð út til að loka veginum um Vatnsskarð á föstudag. Þegar sveitarmenn komu á vettvang var þar föst rúta með um 40 erlendum farþegum auk sjö annarra bíla. Þorsteinn telur að í þeim hafi verið 15 til 20 manns, flestir Íslendingar.

Sveitin lokaði veginum um sexleytið og hófst þá handa við að koma bílunum af skarðinu. Fyrst tókst að koma rútunni af stað og fylgja henni til byggða. Að því loknu versnaði veðrið og það var ekki fyrr en undir eitt um nóttina sem síðustu bílarnir komust niður.

„Við vorum í sex til sjö tíma að brasa þarna í heildina,“ segir Þorsteinn. Hann tekur fram að varað hafi verið við óveðrinu og að enginn hafi farið í gegnum skarðið eftir að veginum var lokað.

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð aðstoðaði á sjötta tug manna sem sátu fastir á Vatnsskarði á föstudagskvöld. Samsett mynd/Facebook

Tveir sáu líklega snjó í fyrsta sinn

Farþegarnir í rútunni voru frá Indlandi og höfðu beðið þar í tvo til þrjá tíma þegar björgunarsveitina bar að. Að sögn Þorsteins héldu þeir sig inni í rútunni en fylgdust með veðrinu út um gluggana.

„Þeim þótti þetta gaman og fannst veðrið tilkomumikið,“ segir hann. Að því er hann best veit voru tveir farþeganna að sjá snjó í fyrsta sinn. Hann telur þó að biðin hafi tekið á og veltir fyrir sér hvort farþegarnir hafi áttað sig til fulls á því hversu slæmar aðstæðurnar voru.

Myndskeið af aðstæðum á Vatnsskarði sem flugbjörgunarsveitin birti á Facebook hefur vakið talsverða athygli. Þegar þetta er skrifað hafa 24,6 þúsund manns líkað við myndskeiðið og á sjötta hundrað athugasemda borist.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅