Jón Gnarr útilokar ekki frekari flótta úr Viðreisn – „Gjörsamlega óþolandi“

Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, segir að það kæmi sér ekki á óvart ef fleiri þingmenn Viðreisnar ákvæðu að yfirgefa flokkinn. Hann segir aðstæður innan þingflokksins hafa verið orðnar gjörsamlega óþolandi þegar hann sjálfur ákvað að segja skilið við hann.

Þetta kemur fram í viðtali við RÚV í kjölfar þess að Ingvar Þóroddsson tilkynnti í gær að hann hefði yfirgefið Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Aðspurður hvort það kæmi honum á óvart ef þriðji þingmaðurinn yfirgæfi Viðreisn svaraði Jón:

„Nei, það myndi ekki gera það.“

Jón sagðist þó ekki hafa neinn sérstakan þingmann í huga.

„En miðað við mínar aðstæður að stíga út úr þessum hópi, af því að mér fannst aðstæðurnar orðnar gjörsamlega óþolandi, þá get ég alveg ímyndað mér að öðrum finnist það líka.“

Jón segir að brotthvarf Ingvars hafi ekki komið sér á óvart. Þeir hafi rætt saman eftir að Jón yfirgaf þingflokkinn og meðal annars farið yfir vinnubrögð innan hans.

Jón segist sjálfur hafa gagnrýnt óljósa ákvarðanatöku og skort á lýðræði innan þingflokksins.

„Það höfum við rætt, já, og þennan skort á forystu sem mér hefur fundist mjög óþægilegur.“

Jón sagðist ekki geta metið hvaða áhrif brotthvarf Ingvars hefði á ríkisstjórnarsamstarfið en viðurkenndi að tíðindin væru erfið fyrir ríkisstjórnina.

„Þetta er leiðinlegt fyrir ríkisstjórnarsamstarfið að missa mann úr sínum röðum, það er bara erfitt og ekkert sem hlakkar í mér neitt yfir.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅