Greindi tárvot frá stórri ákvörðun
Tatjana Smith, tvöfaldur ólympíumeistari í sundi, barðist við tárin þegar hún tilkynnti að hún myndi héðan af keppa fyrir Holland í stað Suður-Afríku.
„Draumar geta breyst eftir því sem við þroskumst sem manneskjur,“ sagði hin 29 ára gamla Smith í myndbandi á samfélagsmiðlum þar sem hún tilkynnti ákvörðunina.
Smith, sem áður hét Schoenmaker, er með ríkisborgararétt í báðum löndunum. Hún vann tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun fyrir Suður-Afríku á Ólympíuleikunum í Tókýó og París áður en hún lagði sundhettuna á hilluna árið 2024.
Hún sneri aftur til keppni í september. Hollenska sundsambandið staðfesti að fyrsta stórmót hennar fyrir hönd Hollands yrði heimsmeistaramótið í 25 metra laug í Peking í desember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/26/1692665.jpg)