„Föðurlausir“ Grænlendingar höfða mál

Grænlenska höfuðborgin Nuuk í september síðastliðnum.

Grænlenska höfuðborgin Nuuk í september síðastliðnum. AFP/Mads Claus Rasmussen

Réttarhöld hefjast í Danmörku í dag þar sem hópur Grænlendinga höfðar mál gegn ríkinu og heldur því fram að réttindi þeirra hafi verið brotin þegar þeir gátu ekki fengið faðerni danskra feðra sinna lagalega viðurkennt.

Á árunum 1938 til 1963 á Vestur-Grænlandi og til ársins 1974 annars staðar á landsvæðinu fengu börn sem fæddust utan hjónabands og áttu danskan föður faðerni sitt ekki lagalega viðurkennt, ólíkt börnum sem bjuggu í Danmörku.

Stefnendurnir 26 halda því fram að þessi mismunun, sem byggðist á uppruna þeirra, hafi falið í sér misrétti og meðal annars svipt þá arfi sínum.

Samkvæmt mati danska félagsmálaráðuneytisins má telja að 8.000 manns sem fæddust á Grænlandi á árunum 1911 til 1974 séu „lagalega föðurlausir“.

Mads Pramming, lögmaður stefnendanna 26, er bjartsýnn.

„Málið er mjög sterkt þegar kemur að mannréttindum,“ sagði hann við AFP.

Mads Pramming.

Mads Pramming. AFP/Finn Frandsen

„Lagalega föðurlausir“ 

Klaus Frederiksen er einn talsmanna „lagalega föðurlausra“. Hann er kominn til Kaupmannahafnar vegna réttarhaldanna og á að bera vitni á morgun.

Hann fæddist árið 1962 í Qullissat, litlum námubæ á Vestur-Grænlandi, og var móðir hans grænlensk en faðirinn danskur.

Faðir hans var verkamaður sem hafði komið til að aðstoða við að nútímavæða húsnæði og innviði á þessari víðáttumiklu heimskautseyju.

Þótt foreldrar hans byggju saman og ættu tvö börn gengu þau aldrei í hjónaband.

Árið 1964 sneri faðir Frederiksens aftur til Danmerkur, þar sem hann átti þegar fjölskyldu, og hafði aldrei samband aftur.

„Hann viðurkenndi faðernið en það stendur skýrt, svart á hvítu, að ég eigi engan rétt á arfi eftir hann,“ sagði Frederiksen við AFP.

„Orð Danans voru lög, allir urðu að hlýða.“

Lögin áratugi að ná til Grænlands

Danmörk setti lög um faðerni strax árið 1937, en það tók áratugi þar til þau náðu einnig til Grænlands, bæði af skipulagsástæðum og vegna tregðu heimamanna.

„Danska ríkisstjórnin var sú sem gat í raun ákveðið reglurnar, en vegna þessara hindrana kaus hún að viðhalda þessum lagalega mun á börnum sem fæddust utan hjónabands í Danmörku og á Grænlandi,“ sagði sagnfræðingurinn Sniff Nexo, sem skrifaði skýrslu um málið árið 2011.

Í kjölfar skýrslunnar fengu „lagalega föðurlausir“ möguleika á að höfða faðernismál og erfa föður sinn, að því tilskildu að dánarbúinu hefði ekki enn verið skipt.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅