Fær á baukinn fyrir viðtal um helgina

Gabriel Clarke, fréttamaður ITV, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir viðtöl sín við Declan Rice og Thomas Tuchel eftir 3-2 sigur Englands á Spáni í Þjóðadeildinni um helgina.

Clarke spurði Rice hvort leikurinn hefði fengið hann til að hugsa út í tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum HM í sumar. Rice svaraði að sá leikur hefði einfaldlega ekki fallið með Englendingum og hrósaði liðsfélögum sínum fyrir baráttuna gegn Spáni.

Skömmu síðar ræddi Clarke við Tuchel og sagði Rice hafa viðurkennt að leikurinn hefði rifjað upp slæmar minningar frá Argentínuleiknum. Tuchel tók ekki undir samanburðinn.

Simon Jordan, fyrrverandi stjórnarformaður Crystal Palace og útvarpsmaður, var allt annað en sáttur við framgöngu fréttamannsins.

„Declan Rice sagði ekki að þetta hefði minnt sig á Argentínuleikinn. Gabriel Clarke sagði það sjálfur og setti það svo fram í viðtalinu við Tuchel eins og Rice hefði sagt það! Ekki segja mér að þessi fréttamaður geri þetta ekki viljandi til að fá viðbrögð,“ skrifaði Jordan á X.

Clarke sætti einnig gagnrýni á HM í sumar þegar hann bar gagnrýni Tuchel undir Jude Bellingham án þess að koma jafnframt á framfæri hrósi þjálfarans í garð liðsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅