Gerir þú alltaf sömu mistökin seint á kvöldin? – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 08:00
Ragga Nagli. Mynd: DV/Hanna.
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir að það séu meiri líkur á að þú missir tökin af mataræðinu ef þú ert sífellt að banna þér hluti. Hún útskýrir málið í nýjum pistli á Facebook, en pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.
Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari.
Flestir kannast við hugarfarið „fokkitt“ og „skítt með það“ þegar kemur að mataræði.
Ragnhildur tekur dæmi: „Ohh, hvort sem er búin að klúðra deginum. Fokkitt, held bara áfram að sukka og byrja aftur á morgun.“
Ragnhildur segir þetta viðmót banka upp á bara á ákveðnum tímum. „Þegar rökhugsunin og viljastyrkurinn eru á núllpunkti,“ segir hún.
„Eftir ömurlegan dag í vinnunni „áttu fjandakornið skilið“ súkkulaði. Standandi fyrir framan skápinn rennur niður heil plata af Konsúm og Dórítós poki.“
Hún segir „fokkitt“ mæta yfirleitt á svæðið:
- Eftir vinnu á föstudögum
- Klukkan tíu á kvöldin
- Í fríi í útlöndum
- Í sumarbústaðnum
- Í föstudagskaffinu í vinnunni
- Í fermingarveislu, brúðkaupum, saumaklúbbnum, spilakvöldum
- Á sunnudögum eftir sukkhelgi
„Fokkitt mætir bara hjá þeim sem hafa verið að halda sér frá öllu sem heitir sykur, hveiti og fita, eins og smábarn í pissuspreng [...] En ef við erum alltaf slök eins og hippi í Kaliforníu gagnvart öllum mat þá þarf Fokkitt aldrei að mæta á þröskuldinn. Hvort sem það er mánudagur eða laugardagur. Hvort sem það er desember eða mars.
Því þú segir oftar JÁ en NEI.
Já, veistu, ég væri til í einn mola.
Já takk, ég fæ mér eina litla sneið.“
Ragnhildur segir að þegar enginn matur er á bannlista þá missi hann valdið yfir þér. „Hann er alltaf í boði. Þú normalíserar það sem áður var spennandi og forboðið,“ segir hún og bætir við að jafnvægi allt árið sé lykillinn.
„Taktu bita af alls konar. Ekki troða þig út af neinu.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗