Frumvarp birt um náttúru- og innviðagjald
Útbýtt var utan þingfunda í gærkvöldi stjórnarfrumvarpi atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald.
„Markmið laga þessara er að tryggja sjálfbæra ferðaþjónustu og sanngjarna þátttöku ferðamanna í fjármögnun verndar, uppbyggingar og viðhalds innviða og fjölsóttra náttúruperla í eigu ríkisins og þjóðarinnar. Til að ná því markmiði er í lögunum mælt fyrir um álagningu náttúru- og innviðagjalds,“ segir í fyrstu grein frumvarpsins.
Áform stjórnvalda um að taka upp náttúru- og innviðagjald hafa verið mikið í umræðunni og hafa þau meðal annars verið gagnrýnd af ferðaþjónustunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗