Bankarnir gætu setið uppi með hundruð íbúða – Íslandsbanki keypti 20 á Hlíðarenda
Blikur eru á lofti á íslenskum fasteignamarkaði og vara Acro verðbréf við því að brotlending kunni að vera fram undan. Fjárhagserfiðleikar byggingarfyrirtækja gætu orðið til þess að tugir eða jafnvel hundruð nýbygginga lendi í eigu bankanna á næstu mánuðum.
Á sama tíma hefur dótturfélag Íslandsbanka keypt 20 íbúðir á Hlíðarendasvæðinu í Reykjavík, þar sem bankinn sjálfur fjármagnar umfangsmikla uppbyggingu.
Frá þessu er greint á forsíðu Morgunblaðsins í dag og í frétt á síðu 2.
Byggingafélagið S8 ehf. hefur unnið að uppbyggingu 195 eigna á svæðinu en samkvæmt Morgunblaðinu seldust aðeins 14 þeirra í sumar. Þá keypti Fastengi ehf., dótturfélag félags í fullri eigu Íslandsbanka, 20 íbúðir í verkefninu.
Íslandsbanki er jafnframt fjármögnunarbanki framkvæmdanna og hvíla tryggingar vegna fjármögnunar bankans á eignunum.
Í nýrri greiningu Acro verðbréfa, sem Morgunblaðið vísar til í umfjöllun sinni, er dregin upp dökk mynd af stöðu hluta byggingargeirans. Hár fjármagnskostnaður hafi étið upp eigið fé sumra verktaka, aukið þrýsting á fasteignaverð og lengt þann tíma sem tekur að selja nýbyggingar.
Acro spáir því að bankarnir geti eignast tugi eða hundruð nýbygginga á næstu mánuðum vegna fjárhagserfiðleika verktaka. Þrátt fyrir þessa stöðu virðist áhættustaða bankanna vera sterk og það bendi til þess að þó ákveðin verkefni standi illa þá standi hluti geirans fjárhagslega sterkt.
Samkvæmt greiningunni eru um 2.300 nýbyggingar auglýstar til sölu hér á landi. Þá séu fjölmargar fullbúnar íbúðir enn óseldar án þess að hafa verið settar á markað. Acro telur að það geti nú tekið um tvö ár að selja fyrirliggjandi birgðir nýbygginga miðað við söluhraða.
Íslandsbanki vildi ekki tjá sig við Morgunblaðið um einstök viðskipti en tók fram að ekki stæði til að Fastengi ætti íbúðirnar á Hlíðarenda til langs tíma.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗