Tvö ensk félög á eftir Ítala - Yrði dýrastur í sögunni hjá báðum

Newcastle og Brentford hafa áhuga á Issa Doumbia, 23 ára miðjumanni Sporting í Portúgal. 

Doumbia gekk til liðs við Sporting frá Venezia í sumar og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína. Talið er að ítölsk stórlið séu einnig á höttunum eftir honum.

Sporting er sagt vilja um 70 milljónir punda fyrir Doumbia, sem er með samning til ársins 2031. 

Yrði Ítalinn dýrasti leikmaður í sögu bæði Newcastle og Brentford ef annað félaganna gengur að verðmiðanum, þó aðeins naumlega í tilfelli fyrrnefnda félagsins en Nick Woltemade kostaði það um 69 milljónir punda.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅