Fyrrverandi rússneskur njósnari afhjúpar „mjólkurtækni“ sem hún notaði til að fá menn til að kolfalla
Fyrrverandi rússneski leyniþjónustumaðurinn Aliia Roza hefur opnað sig um fyrri feril sinn og afhjúpað lúmskar meðferðaraðferðir sem hún notaði á vettvangi. Roza fæddist í virtri herfjölskyldu í fyrrum Sovétríkjunum og fékk síðar stranga þjálfun í sálfræðilegri skilyrðingu og list tælingar.
Hún lærði hvernig á að stjórna mannshuganum á meðan hún á leynd við að leysa upp kynlífsmansalshringi. Roza heldur því að spilltur yfirmaður hennar hafi svikið hana og komið upp um hana í aðgerð gegn rússnesku gengi, þess vegna hafi hún neyðst til að flýja Sovétríkin.
Roza hefur síðan byggt upp nýtt og farsælt líf í Evrópu sem tískuáhrifavaldur og þjálfari í valdeflingu kvenna. Í viðtölum við fjölmiðla og hlaðvörp hefur hún svipt hulunni af og tjáð sig um alþjóðlega njósnaheiminn.
Roza útskýrði fyrir New York Post nákvæmlega hvernig farið er að því að láta þolanda verða ástfanginn: „Þeir þurfa að stjórna þolandanum, tilfinningum hans eða öðru sem hægt er að nýta, og þeir munu gera hvað sem þarf.“
Roza segir njósnara oft nota sálfræðibragð sem hún kallar „mjólkuraðferðina“ (e. milk technique*). Með henni er þolandinn smám saman heilaþveginn með því að láta líta út fyrir að til séu sameiginleg tengsl sem í raun eru uppspuni.
„Falskur aðgangur á samfélagsmiðlum fylgir vinum þínum, eða segir: „Bill er vinur bróður míns“, þannig að þú hugsar: „Allt í lagi, ég get treyst henni.“ En þetta er allt uppspuni. Þú birtist fyrst í lífi viðkomandi, nánar tiltekið sjö sinnum, áður en þú hefur samband. Þú gætir látið sjá þig á kaffihúsinu þeirra eða í ræktinni, eða einfaldlega haldið áfram að líka við færslurnar þeirra. Þegar þið loksins hittist, treystir heilinn í viðkomandi þér nú þegar.“
Aliia Roza. Mynd: Getty.
Í hlaðvarpinu Figuring Out With Raj Shamani sagði hún: „Samkvæmt sálfræðinni þurfum við að sjá manneskju eða auglýsingu sjö sinnum að minnsta kosti til að geta tekið ákvörðun um að kaupa eitthvað eða hefja samtal við nýja manneskju.“
Roza sagði að ferlið byrji á mikilli „ástardreifingu“ (e. love bombing), ásamt skilaboðum fullum af hrósi og myndum af viðkomandi í bikiníi. Hún sagði við New York Post: „Þeir láta eins og þeir séu varnarlausir eða einmana segja til dæmis: „Foreldrar mínir voru drepnir, ég er námsmaður, ég er blönk“, þetta vekur upp hetjuhvötina. Allir karlmenn vilja fá að vera bjargvætturinn.“
Að sögn Roza afla njósnarar sér einnig upplýsinga um fyrri sambönd þolandans, sem gerir þeim kleift að líkja eftir útliti fyrrverandi maka eða elskhuga. Ef fyrrverandi ástkona hans klæddist hvítum sokkum, stuttum pilsum og var með fléttur, þá klæddi Roza sig nákvæmlega eins.
Í viðtali í þættinum Shawn Ryan Show útskýrði hún: „Það var nú þegar komin hugmynd í hausinn á honum: „Hvað ef hún lítur nákvæmlega út eins og hin stúlkan? Hvað ef það er möguleiki á að hún elski mig í raun og veru og verði mér trú?“
Roza viðurkenndi meira að segja að hún hefði beitt brögðum til að fá líkama sinn til að losa ferómón, rétt áður en hún hitti skotmark sitt. Hún hélt áfram: „Ef þú vilt ákveðinn mann, vilt tæla hann og veist nákvæmlega að hann er skotmarkið þitt, þá er best að setja mynd af honum á spegilinn á veggnum eða hvar sem er þannig að þú getir séð hann. Þegar þú færð fullnægingu horfir þú á myndina og það virkar enn betur ef þú segir nafn hans upphátt. Þannig byggir þú eins konar brú á milli myndarinnar og heilans í þér.“ Roza útskýrði að með því að tengja myndina í huganum við manninn sem þú hefur augastað á, muni líkami þinn í hvert sinn sem þú sérð hann sjálfkrafa sýna merki um „ástand fyrir fullnægingu“: kinnarnar roðna og augun verða glitrandi, eitthvað sem hann getur ómögulega látið framhjá sér fara.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗