Sem betur fer gekk allt vel með dóttur hans
Arnar Gunnlaugsson segir Daníel Leó Grétarsson hafa þróast í einn mikilvægasta leikmann íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Daníel tók þátt í síðustu leikjum Íslands í Þjóðadeildinni þrátt fyrir erfiðar aðstæður í fjölskyldunni, en dóttir hans þurfti nýverið að gangast undir stóra aðgerð.
„Ótrúlegur karakter. Sem betur fer gekk þetta allt vel með dóttur hans,“ sagði Arnar eftir 3:0 sigur Íslands á Lúxemborg í kvöld.
Daníel hefði komið tilbúinn til leiks og liðið þurft mikið á honum að halda vegna meiðsla og leikbanna annarra varnarmanna.
Arnar sagði varnarmanninn jafnframt hafa náð góðum tökum á þeim kröfum sem gerðar væru til hans í leikskipulaginu. Hann hefði þurft að læra að stíga ofar á völlinn og sækja fast að sínum manni.
„Eftir að hann skildi það þá elskaði hann að fara í þann leiðangur að vinna návígi.“
Framlag Daníels væri þó ekki síður mikilvægt með boltann.
„Hann er orðinn miklu betri á boltann heldur en marga grunar og flestar sóknir hefjast eiginlega með hans framlagi.“
Sigurinn tryggði Íslandi efsta sætið í riðli sínum í C deild og sæti í B deild.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗