Tekinn á 128 km hraða

Lögreglubíll.

Lögreglubíll. mbl.is/Ólafur Árdal

Lögreglan á Vínlandsleið kærði ökumann fyrir að aka á 128 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Lögreglan á Hverfisgötu kærði einstakling fyrir vopnalagabrot. Hann var fluttur á stöð í hefðbundið ferli og var látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Tilkynnt var um umferðarslys í Garðabæ þar sem ekið var á grindverk og ekið í burtu frá vettvangi. Málið er í rannsókn.

Ljósmynd/Colourbox

Neitaði að veita öndunarpróf

Lögreglan sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti kærði ökumann fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann neitaði að veita öndunarpróf. Ökumaðurinn var fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli og látinn laus að því loknu.

Tilkynnt var um þjófnað í matvöruverslunum í Breiðholti og í Múlahverfinu í Reykjavík.

Einnig var tilkynnt um eignaspjöll í Garðabæ og er málið í rannsókn.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅