„Ég byrjaði að elda fyrir saumaklúbbinn hennar mömmu“
Guðmundur Víðir Víðisson byrjaði ungur að aldri að prófa sig áfram í eldhúsinu. Í dag er hann yfirmatreiðslumeistari Hilton Reykjavík og DOM Brasserie & Bar og deilir hér uppskriftum og ráðum fyrir jólamatinn. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Fyrstu gestirnir sem Guðmundur Víðir Víðisson eldaði fyrir voru konurnar í saumaklúbbi móður hans. Í dag er hann yfirmatreiðslumeistari Hilton Reykjavík og DOM Brasserie & Bar. Þegar kemur að jólamatnum vill hann gefa hefðunum sitt pláss en bendir á að stundum þurfi aðeins nýtt meðlæti til að breyta máltíðinni.
„Ástríðan fyrir mat kviknaði heima í Grundarfirði þar sem ég ólst upp. Mamma hefur sagt mér að átta ára hafi ég ætlað að verða bakari en ári síðar var matreiðslan farin að heilla mig. Ég byrjaði að elda heima, meðal annars fyrir saumaklúbbinn hennar mömmu. Síðar fór ég að aðstoða á veitingastað í bænum fyrir jólin og þaðan lá leiðin í eldhúsið á hótelinu.“
Stökk pura og safaríkt kjöt eru markmiðið. Guðmundur Víðir deilir uppskrift sinni að purusteik neðar í greininni. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
„Óskar kenndi mér mikið um samskipti“
Sautján ára flutti Guðmundur Víðir til Reykjavíkur og hóf nám á Argentínu steikhúsi hjá Ingvari Sigurðssyni matreiðslumeistara. Þar lærði hann að góð máltíð snýst um fleira en það sem kemur á diskinn.
„Óskar Finnsson var eigandi staðarins á þeim tíma. Hjá Ingvari lærði ég handverkið í eldhúsinu en Óskar kenndi mér mikið um samskipti við gesti og hvernig góð matarupplifun verður til.“
Síðan hefur hann starfað í eldhúsum bæði hér á landi og í Noregi, meðal annars á Reykjavík Meat og Mathúsi Garðabæjar. Nú fer hann fyrir eldhúsinu á Hilton Reykjavík og nýopnuðum DOM Brasserie & Bar, þar sem undirbúningur hátíðanna er í fullum gangi.
„Hjá Ingvari lærði ég handverkið í eldhúsinu en Óskar kenndi mér mikið um samskipti við gesti og hvernig góð matarupplifun verður til.“ Ljósmynd/Kristinn Magnússon
„Margir vilja halda í hefðirnar“
Hvað ráðleggurðu þeim sem vilja breyta einhverju í jólamatnum en halda í hefðirnar?
„Margir vilja halda í sínar hefðir þegar kemur að jólamatnum og breyta lítið út af vananum. Nýtt meðlæti eða nýr eftirréttur getur þó verið skemmtileg leið til að prófa eitthvað nýtt með uppáhaldsréttunum.“
Guðmundur Víðir deilir hér uppskriftum að purusteik, súkkulaði crème brûlée og tvenns konar meðlæti sem verður á borðum á DOM yfir hátíðarnar.
Í eftirréttinum mætast mjólkursúkkulaði, kanill og appelsína undir stökkri sykurskel. Rauðlaukssulta með rifsberjum fer vel með reyktri önd, gröfnu nauti og villibráð, en ananas- og apríkósusalsa gefur hamborgarahryggnum nýjan félagsskap. Þar fær hinn kunnuglegi ananas með jólaskinkunni að njóta sín í annarri mynd.
Í eftirréttinum mætast mjólkursúkkulaði, kanill og appelsína undir stökkri sykurskel. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Leyndarmálið að stökkri puru
Hvernig gerir maður hina fullkomnu purusteik?
„Purusteik byrjar á góðu hráefni og gott er að velja sér kjötbita sem er hæfilega feitur. Fitan hjálpar til við að koma í veg fyrir að kjötið verði þurrt og gerir það safaríkara.“
Aðferð Guðmundar Víðis felst í því að elda svínasíðuna fyrst við vægan hita, með skinnhliðina niður í krydduðu vatni. Rákirnar sker hann í skinnið eftir þá eldun, áður en steikin fer aftur í ofninn við hærri hita til að gera puruna stökka.
„Ég byrja á að elda steikina með skinnhliðina niður og ofan í krydduðu vatni. Það er hægt að undirbúa og forelda steikina deginum áður til að minnka stressið á sjálfum hátíðardeginum.“
„Purusteik byrjar á góðu hráefni og gott er að velja sér kjötbita sem er hæfilega feitur,“ segir Guðmundur. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Margt í boði fyrir jólin
Á jólahlaðborðinu á Hilton Reykjavík verða bæði kunnuglegir hátíðarréttir og aðrir sem gefa fólki færi á að smakka eitthvað nýtt. Meðal forrétta eru hreindýrapaté með sultuðum bláberjum, grafinn lax með sinnepssósu og léttreykt andabringa með rauðlaukssultu.
Hangikjöt, hamborgarahryggur, nautalund og grísapurusteik verða einnig á borðum ásamt kalkúnabringu með salvíusmjöri. Meðal grænmetisrétta eru hnetusteik og sætkartöflur í smjördeigi. Í eftirrétt verða meðal annars risalamande, sérrítriffli og kryddað crème brûlée.
Í hátíðarsal hótelsins tekur dansgólfið svo við af matarborðinu þegar Stuðlabandið leikur fyrir dansi á föstudögum og laugardögum frá 13. nóvember til 12. desember.
Á DOM verður jólahlaðborð á kvöldin til 20. desember og í hádeginu á virkum dögum frá 16. nóvember til 30. desember. Jólabrunch verður um helgar frá 14. nóvember til 3. janúar, auk almennra frídaga í desember.
Purusteik að hætti Guðmundar Víðis
„Það er hægt að undirbúa og forelda steikina deginum áður til að minnka stressið á sjálfum hátíðardeginum.“ Ljósmynd/Kristinn Magnússon
- 1 kg svínasíða
- Vatn, eftir þörfum
- 5 negulnaglar
- 10 svört piparkorn
- 3 stjörnuanísar
- 3 lárviðarlauf
- 5 einiber
- Gróft salt, eftir þörfum
Aðferð
- Hitið ofninn í 130 °C.
- Hellið vatni í eldfast mót og bætið negulnöglum, piparkornum, stjörnuanís, lárviðarlaufum og einiberjum út í.
- Leggið svínasíðuna í mótið með skinnhliðina niður. Vatnið á að ná upp að miðju steikarinnar.
- Eldið í 1½–2 klukkustundir, eftir stærð steikarinnar.
- Takið steikina úr vökvanum og þerrið vel með eldhúspappír. Látið hana jafna sig í stutta stund.
- Hitið ofninn í 220 °C á blæstri.
- Skerið rákir í skinnið niður í fituna, án þess að skera í vöðvann. Leggið steikina á grind með skinnhliðina upp.
- Nuddið grófu salti vel í skinnið og ofan í rákirnar. Einnig má stinga nokkrum negulnöglum í þær.
- Setjið steikina í ofninn í um 25–30 mínútur eða þar til puran er fallega gyllt og stökk. Tíminn getur verið breytilegur eftir ofnum.
Rauðlaukssulta með rifsberjum
Sætan og sýran í rauðlaukssultunni fara vel með söltum og reyktum mat. Guðmundur Víðir mælir með henni með reyktri önd, gröfnu nauti og villibráð, en einnig á hreindýrahamborgara. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
- 1 kg rauðlaukur
- 300 g sykur
- 100 ml balsamedik
- 200 ml rauðvín
- 150 g rifsberjasulta
- 50 g rifsber, má sleppa
Aðferð
- Afhýðið rauðlaukinn og skerið í þunnar sneiðar.
- Setjið í pott ásamt sykri, balsamediki, rauðvíni og rifsberjasultu. Hitið við meðalhita.
- Látið malla í um klukkustund eða þar til vökvinn hefur minnkað um helming.
- Takið pottinn af hitanum og látið kólna áður en rifsberjunum er blandað saman við.
- Setjið í krukku eða annað ílát og geymið í kæli.
Ananas- og apríkósusalsa
Ferskur ananas, þurrkaðar apríkósur og graslaukur fara vel með reyktum hamborgarahrygg, hvort sem hann er borinn fram heitur eða kaldur. Einnig má blanda salsanu saman við klettasalat og bera fram með máltíðinni. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
- 1 ananas
- 100 g þurrkaðar apríkósur
- Graslaukur, eftir smekk
- Ólífuolía, eftir þörfum
Aðferð
- Skerið hýðið af ananasinum og skerið aldinkjötið í litla teninga.
- Skerið apríkósurnar í álíka stóra bita og blandið saman við ananasinn.
- Saxið graslaukinn smátt og bætið saman við ásamt örlítilli ólífuolíu.
- Berið fram með hamborgarahryggnum eða blandið saman við klettasalat.
Súkkulaði crème brûlée með kanil og appelsínu
Eftirréttinn má bera fram í litlum einstaklingsformum eða einu fati á eftirréttaborðinu. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
- 375 ml rjómi
- 125 ml mjólk
- 6 eggjarauður
- 75 g sykur
- 200 g mjólkursúkkulaði
- 1 kanilstöng
- Fínrifinn börkur af 1 appelsínu
- Hrásykur, til að strá yfir
Aðferð
- Hitið ofninn í 95 °C.
- Setjið rjóma, mjólk, sykur, kanilstöng og appelsínubörk í pott. Hitið vel án þess að láta sjóða. Takið pottinn af hitanum.
- Setjið eggjarauðurnar í skál. Hellið heitri rjómablöndunni rólega saman við og hrærið á meðan.
- Brjótið súkkulaðið í aðra skál og hellið eggjablöndunni í gegnum sigti yfir það. Hrærið rólega þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er slétt.
- Hellið í lítil einstaklingsform eða eldfast fat, um 25 cm langt.
- Bakið í vatnsbaði í um 30–45 mínútur, eftir stærð formanna, eða þar til blandan hefur stífnað.
- Kælið í 3–4 klukkustundir eða yfir nótt.
- Stráið þunnu lagi af hrásykri yfir og bræðið með eldhúsbrennara þar til stökk sykurskel myndast. Einnig má nota grillið í ofninum en þá þarf að fylgjast vel með.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗








