Ævintýramaðurinn sem gæti verið hinn sanni Indiana Jones - Græddi formúu, spilaði póló með Karli Bretakonungi, þjálfaði Gaddafi og hatar áhrifavalda

Breski ævintýramaðurinn Geoffrey Kent gæti verið hinn raunverulegi Indiana Jones. Kent, sem var sonur bresks herforingja í nýlenduhernum og konu úr efri stéttum Lundúna, fæddist í Sambíu árið 1942 á meðan foreldrar hans voru í safaríferð.

Kent segir frá ævintýralegu lífshlaupi sínu í bókinni The Greatest Adventurer: From the Wilds of Africa to a Billion-Dollar Travel Empire, sem kom út 10. nóvember og Kent skrifaði í samstarfi við Ben Mezrich, höfund bókarinnar The Accidental Billionaires. Í sögunni um ævintýramanninn sem varð forstjóri koma við sögu ræningjar, uppreisnarmenn og einræðisherrar sem láta öllum illum látum.

Sextán ára gamall lagði Kent af stað frá Naíróbí á mótorhjóli og ferðaðist 4800 kílómetra þvert yfir Afríku á sex mánuðum. En þar sem hann var ungur og ævintýragjarn hugsaði hann ferðina ekki til enda, hann komst alla leið til Höfðaborgar en var þá orðinn peningalaus. Hvernig átti hann að komast heim?

Kent hefur alltaf leitað að gróðatækifærum og fyrstu kynni hans af viðskiptum tengdust fílaveiðum, sem voru eins konar manndómsvígsla, þegar hann var 16 ára gamall. Leiðsögumennirnir í ferðinni fléttuðu hár úr hala fílsins í armband, og Kent tók eftir því að ferðamenn voru alveg heillaðir af þessum skrautmun. Kent fann vörð á dýraverndunarsvæði sem átti heilu pokana af dýrahölum og vissi ekki hvað hann átti að gera við þá. Í stað þess að bjóðast til að kaupa halana spurði Kent vörðinn: „Hversu mikið myndir þú borga mér fyrir að losa þig við þetta?“ Vörðurinn svaraði: „20 skildinga á pokann eða 40 skildinga á pokann. Ég skal borga þér... losaðu mig bara við þetta.“

Gerði safariferðir að lúxusferðum

Starfsemin óx á sjöunda áratugnum, þegar hann stofnaði fyrirtækið Abercrombie and Kent ásamt foreldrum sínum. Fyrirtækið byrjaði smátt með þjónustu fyrir veiðimenn og átti það einn Land Rover-bíl. En Kent hafði hugmyndir sem áttu eftir að breyta ferðaþjónustu til frambúðar.

Eftir að hafa gegnt herþjónustu sem aðstoðarmaður yfirmanns, sem krafðist sömu þæginda og lúxus og hann átti að venjast heima fyrir, jafnvel úti í óbyggðum, velti Kent því fyrir sér hvers vegna ekki væri hægt að bjóða upp á sömu þægindi í safaríferðum.

Hann fór því að draga með sér loftkæld tjöld úr striga, kampavín, ísskápa, fínan borðbúnað og máltíðir sem eldaðar voru af úrvalsmatreiðslumönnum sem hann hafði lokkað til starfa frá fínum einkaklúbbum. Síðan kom annað sem gjörbreytti öllu: að bjóða upp á safariferðir þar sem skotið er með myndavél, en ekki riffli. Hugmynd sem sló í gegn samstundis, sérstaklega hjá ákveðnum hópi Bandaríkjamanna.

„Mig vantaði fyrsta viðskiptavininn, tilraunaverkefni,“ skrifar Kent. „Ég vissi hverju ég var að leita að: stígvél, hatt, úr. Texasbúa.“ Fyrsti viðskiptavinurinn sló til um leið og lúxussafaríin urðu til.

Kent og eiginkona hans Otavia á Galapagoseyjum. Mynd: Facebook.

Samdi við súdanska uppreisnarmenn að sleppa ferðafélögum sínum

Bókin leiðir lesandann í gegnum þær áskoranir sem fylgja því að reka fyrirtæki í miklum vexti, þar á meðal áskoranir sem eru ekki beint dæmigerðar fyrir hefðbundinn rekstur.

Í einum kafla rifjar Kent upp þegar súdanskir ​​uppreisnarmenn tóku ferðafélaga hans í gíslingu, þar á meðal Lee Radziwill, systur Jackie Kennedy. Hann flaug sjálfur til Súdans til að semja um lausn þeirra, en var þar umsvifalaust handtekinn og varpað í fangelsi. Uppreisnarmennirnir héldu því fram að hann væri á vegum CIA.

„Ég sagði: ‚Ég er eins fjarri því og hægt er að vera á vegum CIA. Ég er ekki Bandaríkjamaður. Ég er Englendingur. Ég er Kenýabúi.‘“

Hann fann fljótt hefðbundna leið út úr vandanum. „Hvað mun þetta kosta mig í peningum?“ spurði Kent manninn sem hélt honum föngnum. „Þegar maðurinn sneri aftur nokkrum klukkustundum síðar nefndi hann upphæð: 400.000 dali.“ Kent greiddi gjaldið og ferðafélagar hans losnuðu úr prísundinni.

Kent kom sér upp víðfemu tengslaneti sem hann nýtti óspart fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sitt. Vinir, sem hann eignaðist á pólóvellinum eða í einkaklúbbum í London, urðu að glæsilegum viðskiptavinum sem gerðu fyrirtækið frægt, þar á meðal menn eins og Karl núverandi Bretakonungur, sem var liðsfélagi Kent í pólóliði Windsor Park.

Karl þáverandi prins nú Bretakonungur og Kent. Mynd: Getty.

Sumir kunningjanna voru þó af síðri sortinni. Kent var sendur til Líbíu til að aðstoða við þjálfun hersveita Idris konungs. Þar hitti hann metnaðarfullan og upprennandi foringja: Muammar Gaddafi.

„Fyrir mér er hann bara maður sem ég þjálfaði en hann var afar fær og mjög myndarlegur, og mér líkaði vel við hann,“ sagði Kent við The New York Post.

Gaddafi steypti að lokum konunginum Idris af stóli og réð lengi yfir stórum hluta Úganda, sem var vinsæll áfangastaður fyrir safaríferðir.

„Ég kom fyrsta viðskiptavininum í sögunni í kynni við górillur. Og Gaddafi réð yfir öllum gististöðum og hótelum í Úganda. Það lá því beint við að ég ynni með þeim að byggingu fleiri hótela,“ segir Kent.

Kent og gaddafi. Mynd: Facebook.

Rifust um górillur 

Í Úganda var einnig vinur Kent, ljósmyndarinn Alan Root, sem kynnti dýraverndunarsinnann Dian Fossey fyrir górillum. Hún varð ástfangin af Kent, og þau deildu heiftarlega um hvort fara ætti með ferðamenn til að skoða górillurnar. Fossey óttaðist að ferðirnar myndu ógna búsvæði dýranna. En Kent stóð fastur fyrir, hann gerði sér grein fyrir því að ferðaþjónusta myndi bjarga górillunum.

Af þeim stöðum sem Kent á eftir að heimsækja segist hann langa að heimsækja Íran: „Ég held að það væri líka mjög áhugavert að fara aftur til Íraks. En aftur á móti þarf maður að fara mjög varlega núna. Allir vita af ferðamönnum í dag. Í þá daga ferðaðist ég yfirleitt bara með einni eða tveimur manneskjum. Enginn vissi einu sinni hver við vorum. Enginn vissi neitt,“ sagði Kent. „Mig langar virkilega að sjá Angel-fossa í Venesúela, sem gæti verið möguleiki núna. Svo langar mig til eyjunnar Sókótra í Jemen en það kemur alls ekki til greina núna.“

Kent í Armeníu. Mynd: Facebook.

Sem einn af frumkvöðlum ferðamennskunnar löngu fyrir tíma samfélagsmiðla hefur Kent fylgst með nýrri bylgju svokallaðra áhrifavalda ryðja sér til rúms á TikTok og Instagram. Sú venja þeirra að birta efni alls staðar þar sem þeir koma hefur gert það að verkum að sumir staðir, sem áður voru stórkostlegir, er nú orðið óbærilegt að heimsækja, oft sökum massatúrisma.

„Í fyrsta lagi myndi ég aldrei fara á stað sem áhrifavaldur mælir með. Það er algjört nei frá mér. Þeir heilla mig ekki ögn, ekki einu sinni örlítið.“

„Ég held það“, segir Kent aðspurður um hvort hann telji ferðamennskuna hafa glatað glæsileika sínum. Sjáðu Feneyjar; ég kom þangað fyrir 50 árum. Berum það saman við daginn í dag. Lítum á Mónakó. Skemmtiferðaskip koma í höfn og fólk stendur í röðum. Lítum á alla ferðamennina sem streyma til Barcelona. Það er of mikið af ferðamönnum. Lítum á sumar spænsku eyjarnar, heimamenn vilja alls ekki fá ferðamenn þangað. Hópar ferðamanna streyma að þessum fögru stöðum, en „þeir taka allir myndir, eða sjálfsmyndir, en enginn þeirra eyðir neinum peningum.“

Kent er nýlega kominn úr síðustu leiðangursferð sinni, þar sem hann fór fyrir litlum hópi í 26 daga ferðalag umhverfis jörðina á einkaþotu. Verðmiðinn í ferðina var um 190.000 dali (rúmlega 23,6 milljónir króna).

„Ég fer á alla þá staði sem mig langar að hafa heimsótt en hef ekki enn komið til. Og það er einmitt tilgangurinn með einkaþotu, er það ekki?“ sagði Kent.

Fylgja má Kent og ferðum hans á Facebook.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅