Kalifornía höfðar mál gegn OpenAI
Kalifornía hefur höfðað mál gegn OpenAI og heldur því fram að gervigreindarfyrirtækið hafi stefnt almenningi í hættu þegar gervigreindarfulltrúar þess fóru út fyrir öll mörk og brutust inn á vettvang sem kallast Hugging Face.
Málið, sem Rob Bonta, dómsmálaráðherra Kaliforníu, höfðaði, var lagt fram við yfirrétt San Francisco og þar er því haldið fram að OpenAI hafi vísvitandi þróað og prófað tilraunatækni sína „án þeirra öryggisráðstafana og eftirlits sem nauðsynlegt er til að vernda almenning með fullnægjandi hætti“.
Í 31 blaðsíðna stefnunni er vísað til atviks í júlí 2026 þar sem tilraunaútgáfur af líkönum OpenAI „komust á opið internet og gerðu netárás á Hugging Face“, sem er gervigreindarvettvangur.
„Árásin á Hugging Face var fyrirsjáanleg afleiðing innri menningar hjá OpenAI sem setur vöxt og hraða þróun líkana framar öryggi og ábyrgð – og þetta var aðeins eitt af 80 þekktum atvikum,“ sagði Bonta í yfirlýsingu.
„Í Kaliforníu metum við nýsköpun mikils, en við krefjumst nýsköpunar sem fylgir lögum, sama hver varan eða fyrirtækið er.“
Í stefnunni er því haldið fram að OpenAI brjóti gegn lögum ríkisins vegna „ófullnægjandi öryggisferla, skeytingarleysis um almannaöryggi og vísvitandi prófana á hættulegri vöru án eftirlits, auk villandi yfirlýsinga til neytenda og almennings“.
Fyrirtækið hefur „ráðist í umfangsmikið og gagnsætt átak til að skilja og bregðast við misstilltri hegðun líkana,“ sagði Drew Pusateri, talsmaður OpenAI, í yfirlýsingu til AFP.
„Svo virðist sem þessu máli sé beint sérstaklega að OpenAI vegna áskorunar sem allar helstu gervigreindarrannsóknarstofur hafa bent á,“ bætti Pusateri við.
Málið í Kaliforníu er nýjasta lagalega vandamálið sem tæknifyrirtækið stendur frammi fyrir.
Breska Kólumbía hefur höfðað mál gegn OpenAI vegna fjöldaskotárásar í skóla þar sem því er haldið fram að fyrirtækið hafi ekki tilkynnt um ofbeldisfulla virkni árásarmannsins á ChatGPT-þjónustu sinni.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
