Gerðu árásir á tvær helstu brýr Kænugarðs

Samsett mynd af Pútín Rússlandsforseta og Selenskí Úkraínuforseta.

Samsett mynd af Pútín Rússlandsforseta og Selenskí Úkraínuforseta. AFP/Gavriil Grigorov og Nhac Nguyen

Rússar gerðu árásir á tvær helstu brýr Kænugarðs seint í gærkvöldi. Þeir gerðu einnig fleiri árásir sem skemmdu mikilvæga innviði og trufluðu hitaveitu og vatnsveitu í hlutum höfuðborgarinnar, að sögn borgarstjóra hennar.

Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, hafði varað við árás af hálfu Rússa á næstu dögum, á sama tíma og samningamenn fyrir hönd Kænugarðs, Evrópu og Bandaríkjanna áttu í viðræðum um framtíðarsamningaviðræður við Rússa sem miða að því að finna leið til að binda enda á stríðið.

„Samkvæmt fyrstu upplýsingum hafa Norðurbrúin og Suðurbrúin í höfuðborginni orðið fyrir árásum,“ skrifaði Vítalí Klitsjkó, borgarstjóri Kænugarðs, á Telegram rétt fyrir miðnætti að staðartíma, eða klukkan 22 að íslenskum tíma, skömmu eftir að úkraínski flugherinn varaði við aðvífandi eldflaugum.

Herskip á siglingu nálægt Kerch-brúnni yfir Krímskaga.

Herskip á siglingu nálægt Kerch-brúnni yfir Krímskaga. AFP

„Vegna árásar óvinarins hafa mikilvæg innviðakerfi skemmst,“ sagði hann í síðari færslu og bætti við að hitaveita og vatnsveita í sumum hverfum hefðu raskast.

Önnur árás á Krímskagabrúna

Úkraínumenn gerðu sömuleiðis seint í gærkvöldi árás á Krímskagabrúna, annan daginn í röð. Umferð um brúna var stöðvuð í kjölfarið. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅