Grét í hálft ár þegar börnin fluttu að heiman
Jennifer Lopez á opnunarhátíð óperunnar í Los Angeles um miðjan október, skömmu eftir að tvíburarnir hennar, Emme og Max, fluttu að heiman til að hefja háskólanám. AFP/JC Olivera
Söngkonan Jennifer Lopez segist hafa grátið í hálft ár þegar tvíburarnir hennar, Emme og Max, fluttu að heiman til að hefja háskólanám.
Þótt söknuðurinn hafi verið mikill er hún farin að kunna vel við frelsið sem fylgir því að búa ein.
Lopez, sem er 57 ára, ræddi þessi tímamót í spjallþætti Jimmys Fallons um helgina. Þar sagðist hún hafa fundið fyrir söknuði strax tveimur mánuðum áður en tvíburarnir luku menntaskóla.
Hún á tvíburana Emme og Max, sem eru átján ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum, söngvaranum Marc Anthony.
„Tíminn líður svo hratt“
„Ég er enn með mynd í símanum af þeim í fanginu á mér frá því þegar þau voru ungbörn. Tíminn líður svo hratt, alveg eins og allir segja,“ sagði Lopez.
Lopez sagðist nú í fyrsta sinn frá því hún var rúmlega tvítug hvorki vera í sambandi né með börn á heimilinu. Breytingin hafi líka orðið kveikjan að nýrri tónlist.
„Þegar börnin voru að flytja að heiman bærðust svo margar tilfinningar í mér að ég fór í hljóðverið og byrjaði að prófa mig áfram,“ sagði Lopez.
Hún kvaðst þegar hafa samið um tuttugu lög og vera aðeins hálfnuð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/26/1692687.jpg)