Gerðu árásir á tvær helstu brýr Kænugarðs
Samsett mynd af Pútín Rússlandsforseta og Selenskí Úkraínuforseta. AFP/Gavriil Grigorov og Nhac Nguyen
Rússar gerðu árásir á tvær helstu brýr Kænugarðs seint í gærkvöldi. Þeir gerðu einnig fleiri árásir sem skemmdu mikilvæga innviði og trufluðu hitaveitu og vatnsveitu í hlutum höfuðborgarinnar, að sögn borgarstjóra hennar.
Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, hafði varað við árás af hálfu Rússa á næstu dögum, á sama tíma og samningamenn fyrir hönd Kænugarðs, Evrópu og Bandaríkjanna áttu í viðræðum um framtíðarsamningaviðræður við Rússa sem miða að því að finna leið til að binda enda á stríðið.
„Samkvæmt fyrstu upplýsingum hafa Norðurbrúin og Suðurbrúin í höfuðborginni orðið fyrir árásum,“ skrifaði Vítalí Klitsjkó, borgarstjóri Kænugarðs, á Telegram rétt fyrir miðnætti að staðartíma, eða klukkan 22 að íslenskum tíma, skömmu eftir að úkraínski flugherinn varaði við aðvífandi eldflaugum.
„Vegna árásar óvinarins hafa mikilvæg innviðakerfi skemmst,“ sagði hann í síðari færslu og bætti við að hitaveita og vatnsveita í sumum hverfum hefðu raskast.
Önnur árás á Krímskagabrúna
Úkraínumenn gerðu sömuleiðis seint í gærkvöldi árás á Krímskagabrúna, annan daginn í röð. Umferð um brúna var stöðvuð í kjölfarið.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
