Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 06:30
Juanita Boyd og Carl David Phillips sem er grunaður um að hafa myrt hana.
Í febrúar árið 1981 hvarf 31 árs gömul móðir sporlaust eftir að hafa yfirgefið krá í Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Sex dögum síðar fannst lík hennar í farangursgeymslu eigin bíls, sem sat fastur í leðju á afskekktum akri.
Morðið var óupplýst í áratugi en nú, 45 árum síðar, telur lögregla sig loksins hafa fundið morðingjann. Frá þessu greinir bandaríska tímaritið People.
Juanita Boyd var 31 árs og starfaði við dómshúsið í LaPorte-sýslu í Indiana. Hún átti níu ára son sem hún var mjög náin. Að sögn lögreglu var það alls ekki í hennar eðli að skila sér ekki heim.
Ástrík og umhyggjusöm móðir
„Við vitum að hún var mjög ástrík og umhyggjusöm móðir,“ sagði Andy Hynek, yfirmaður hjá lögreglunni í LaPorte-sýslu, á blaðamannafundi á dögunum.
Boyd yfirgaf krána Snyder's Corner þann 22. febrúar 1981 en sást ekki á lífi eftir það.
Sex dögum síðar fannst Pontiac Catalina-bifreið hennar á akri í dreifbýli LaPorte-sýslu. Bíllinn sat fastur í leðju og hafði einhver komið fyrir spýtum undir afturhjólunum, að því er virtist í tilraun til að losa hann.
Í farangursgeymslunni fann lögregla lík Boyd. Rannsókn leiddi í ljós að hún hafði verið myrt og að dánarorsökin var köfnun.
DNA-rannsókn breytti öllu
Þrátt fyrir rannsókn lögreglu tókst ekki að upplýsa morðið. Ýmsum sönnunargögnum var þó haldið til haga, þar á meðal fatnaði Boyd og munum úr bifreiðinni.
Áratugum síðar tókst að útbúa DNA-snið úr sæði sem fannst á fatnaði Boyd. Samanburður við DNA-skrár skilaði hins vegar engri samsvörun.
Það var ekki fyrr en rannsóknarlögreglan nýtti sér erfðafræðilega ættfræði, þar sem hægt er að rekja skyldleika út frá erfðaefni, sem skriður komst á málið.
Í júlí síðastliðnum var DNA-sýni tekið úr nánum ættingja manns sem hafði komið til greina við rannsóknina.
Í október lá niðurstaðan fyrir. Að sögn lögreglu hafði DNA-rannsóknin leitt í ljós að erfðaefnið á fatnaði Boyd kom frá manni að nafni Carl David Phillips, sem var 37 ára þegar morðið var framið.
Lést árið 2017
Phillips bjó í LaPorte-sýslu þegar morðið var framið og þekkti vel til svæðisins þar sem lík Boyd fannst. Hann hafði búið þar í nágrenninu á yngri árum.
Rannsókn lögreglu leiddi ekki í ljós nein þekkt tengsl milli hans og Boyd, önnur en erfðaefnið sem fannst á fatnaði hennar.
Phillips lést hins vegar 24. september 2017 og verður því aldrei dreginn fyrir dóm vegna málsins.
Lögreglan tilkynnti niðurstöður rannsóknarinnar á blaðamannafundi í síðustu viku.
Í yfirlýsingu lögreglunnar kom fram að hefði Phillips enn verið á lífi hefði embætti saksóknara í LaPorte-sýslu ákært hann fyrir morðið á Juanitu.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗