Slydduél sunnan- og suðaustantil

Rigning við Jökulsárlón.

Í dag er spáð austan 10 til 18 metrum á sekúndu sunnan- og suðaustantil og dálitlum slydduéljum. Annars verður mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt.

Frost verður á bilinu 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en hiti verður kringum frostmark við suðurströndina.

Suðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s, verður á morgun og víða bjart, en skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina. Slydduél eða él verða norðantil annað kvöld. Hiti breytist lítið.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅