Alls ekki samantekin ráð hjá systrunum
„Þetta voru alls ekki samantekin ráð en við Margrét [Lára Viðarsdóttir] verðum báðar ófrískar og það eru tíu dagar á milli barnanna okkar,“ sagði knattspyrnukonan fyrrverandi Elísa Viðarsdóttir í Dagmálum.
Elísa, sem er 35 ára gömul, lagði skóna á hilluna á dögunum eftir að hún varð Íslandsmeistari í fimmta sinn með Breiðabliki en hún varð fimm sinnum Íslandsmeistari á ferlinum og tvívegis bikarmeistari.
Ágætt að dreifa þessu
Elísa sleit krossband í hné í apríl árið 2017, rétt áður en EM í Hollandi hófst, en hún nýtti tímann vel og eignaðist sitt fyrsta barn, Guðmundu Hanne, í apríl árið 2018.
„Fólk trúir því ekki þegar við segjum því að þetta hafi alls ekki verið samantekin ráð,“ sagði Elísa.
„Það var ágætt að dreifa þessu í þessu erfiða ferli. Þetta styrkti mig sem manneskju og í endurkomunni að ná að setja hausinn á eitthvað annað en þessi meiðsli. Að vera móðir og íþróttakona setur hlutina í allt annað samhengi.
Það var ótrúlega auðvelt að mótivera sig fyrir tímabilið 2019. Við vorum fjórar að koma til baka eftir krossbandsslit og það er engin ein endurkoma eins. Við vorum allar að bera okkur saman og önnur var alltaf komin lengra en hin. Þá var gott að vera með góðan sjúkraþjálfara en við vorum held ég allar hjá Rúnari og það hefur oft verið krefjandi fyrir hann að eiga við okkur fjórar,“ sagði Elísa meðal annars.
Viðtalið við Elísu í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗