3,3 milljarðar úr Landamærasjóði
Á tímabilinu 2021 til 2027 mun Landamærasjóður Evrópusambandsins veita Íslandi styrk upp á samanlagt 3,3 milljarða króna en sjóðurinn greiðir allt að 75% af heildarkostnaði verkefna á ytri landamærum Schengen-svæðisins.
Kostnaðurinn við stærstu verkefnin sem sjóðurinn hefur styrkt hér á landi hleypur á mörgum hundruðum milljóna króna.
Sjóðurinn tók m.a. þátt í að fjármagna fjórar nýjar ratsjárstöðvar, sérútbúna landamærabíla fyrir lögregluna, aðgerðabáta fyrir Landhelgisgæsluna og opnun nýrrar áritunardeildar í Tókýó.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗