Horfa aftur um 620 þúsund ár
Lokamálþing ROCS fór fram í Veröld – húsi Vigdísar í gær. mbl.is/Árni Sæberg
Erfðaefni í umhverfinu, svonefnt eDNA, nýtist til að greina umhverfisþróun og lífríki með mjög nákvæmum hætti. Þetta er meðal þess sem rannsóknir Hafrannsóknaseturs Margrétar Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur hafa leitt í ljós. Fjallað var um verkefnið á málþingi sem fram fór í Veröld – húsi Vigdísar síðdegis í gær.
„Við getum nú sýnt hvaða lífverur hafa lifað í hafinu síðustu 620 þúsund árin og hvernig lífríkið hefur breyst í takt við loftslagsbreytingar,“ segir Catherine Richardson, haflíffræðingur og yfirmaður rannsóknasetursins. Skammstöfun þess er ROCS sem stendur fyrir Research Centre on Ocean, Climate and Society. Verkefnið er hluti af átaksverkefni íslenskra stjórnvalda sem hrundið var af stað 2019. Um er að ræða þverfaglegt samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla.
Auk upplýsinga frá umhverfis-DNA segir Richardson að mælingar Argo-flotmælitækis í Grænlandshafi í nærri tvö ár hafi skilað auknum skilningi á göngum makríls, sem þótt hafi óútreiknanlegar. Hafstraumar leiki þar stærra hlutverk en sjávarhiti sem hafi verið talinn ráðandi.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗