20 íbúðir nú í eigu Íslandsbanka

Viðskipti | Morgunblaðið | 17.11.2026 | 6:00

Íslandsbanki hefur keypt 20 eignir af S8 ehf.

Íslandsbanki hefur keypt 20 eignir af S8 ehf. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eignarhaldsfélag í eigu Íslandsbanka hefur keypt 20 eignir af verktakafyrirtækinu S8 ehf. sem reisir nú 195 íbúðir á Hlíðarhorni á Hlíðarendasvæðinu.

Bankinn fjármagnar uppbygginguna og fer í þessi kaup á sama tíma og vanskil byggingariðnaðarins hafa þrefaldast, raunverðslækkun er á fasteignamarkaði og greiningaraðili spáir brotlendingu í greininni.

Lengi hefur verið varað við stöðunni á fasteignamarkaði og í nýrri greiningu frá Acro verðbréfum er því spáð að fram undan sé brotlending á fasteignamarkaðinum. Bent er á að bankarnir séu þegar farnir að stíga inn í þróunina og setja verktökum stólinn fyrir dyrnar. Offramboð sé á markaðinum, mikið af húsnæði er enn í byggingu og sölutregða á nýbyggingum.

Spáir Acro því að verktakar í verstu stöðunni muni fyrr en síðar lenda í hremmingum og að bankarnir muni eignast nýbyggingar í tuga- eða jafnvel hundraðatali. Lækkandi verðbólga og vextir á næsta ári breyti ekki þeirri stöðu.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅